SAT-7 PDF Prenta Senda

Fjölskylda horfir sama á Sat7SAT-7 er kristileg gervihnattasjónvarpsstöð fyrir fólk í Mið-Austurlöndum og Norður-Afríku. Stöðin sendir út kristilegan boðskap á fjórum rásum. Í meira en áratug hefur SAT-7 styrkt kristna einstaklinga og kirkjur með útsendingum sínum um kristna trú.

Um aldamótin 1900 voru kristnir Arabar 20 % af fólksfjöldanum í Miðausturlöndum. Í dag eru þeir færri en 4 % og fer fækkandi. Kristið fólk býr í öllum löndum Arabaheimsins en að þeim er þrengt, þeir geta ekki alls staðar tjáð trú sína opinberlega og þurfa oft að halda guðsþjónustur bak við luktar dyr. Útsendingar Sat-7 sjónvarpsstöðvarinnar er ein besta leiðin til að styðja, uppörva og hjálpa hinum kristnu á svæðinu. Þær eru oft eina leiðin til að ná til einangraðs fólks sem þarna býr með óritskoðaðar upplýsingar og fræðslu. Rúmlega 500 milljónir manna búa í Mið-Austurlöndum og Norður-Afríku og um helmingur þeirra hefur aðgang að gervihnattasjónvarpi. Dagskráin nær einnig til flestra landa Evrópu þar sem margir arabískumælandi innflytjendur búa.

Sat-7 hefur opnað kirkjunum nýja leið til að vitna um trú sína og þjóna öðrum. Rásirnar eru fjórar og eru þær með útsendingar allan sólarhringinn. Þar er barnasjónvarp, arabísk rás, tyrknesk rás og rás sem sendir út á farsi, sem er tungumál talað í Íran og hluta Afganistans. Í Íran búa um 70 milljónir manna og aðeins 1 % þeirra eru kristnir.

Stöðin leitast við að vera samkirkjuleg, gagnrýna ekki önnur trúarbrögð heldur leitast við að koma kristinni kenningu á framfæri og uppörva svo allir áhorfendur finni fyrir kærleika Guðs. Dagskráin er mjög vönduð og að mestu leyti unnin af heimamönnum. Þó svo að megináherslan sé á kristilega dagskrá býður Sat 7 einnig upp á sérstaka fræðsludagskrá um heilsu og heilbrigði, stöðu og réttindi kvenna, heimilisofbeldi og ýmislegt annað sem bætir lífskjör fólks. Tvö myndver eru notuð, annað í Kaíró í Egyptalandi en hitt í Beirút í Líbanon.

Starf Sat 7 er samkirkjulegt og margar kirkjur tengjast starfinu. Fulltrúar kirknanna mynda stjórn stöðvarinnar. Hún fær stuðning og faglega ráðgjöf frá öðrum kirkjum og kristniboðssamtökum. Kristniboðssambandið (SÍK) styður Sat-7 með árlegu fjárframlagi sem hefur farið smáhækkandi á liðnum árum og verður komið upp í 15.000 USD árið 2011 (um 2 milljónir íslenskra króna).
Nánari upplýsingar eru á. www.sat7.org og www.sat7.com.

 

sik.is

Ýmislegt efni

Tengdar síður

Samstarfsaðilar


© Samband íslenskra kristniboðsfélaga - Sniðmát hannað af Themza