|
Á heimavelli mynda hin ýmsu kristniboðsfélög, hópar og einstaklingar net velunnara og bakhjarl starfsins. Kristniboðsfélögin halda fundi með reglulegu millibili, en þó ekki jafn oft öll þeirra. Sum hittast á mánaðarfesti, önnur á hálfsmánaðarfresti og enn önnur tíðar eða sjaldnar. Beðið er fyrir starfinu, fjármunum safnað, staði fyrir fjáöflun og kynningu o.s.frv.
Starfsmenn SÍK heimsækja kristniboðsfélög, söfnuði, skóla, barnastarf kirkjunnar, KFUM og KFUK og önnur samtök sem óska eftir heimsókn frá Kristniboðssambandinu.
Kristniboðssambandið gefur út Kristniboðsfréttir í 4.500 eintökum fjórum sinnum á ári. Undanfarið ár hefur verið sent netbréf, Kristniboðspósturinn, til þeirra sem þess óska.
Kristniboðssambandið gefur einnig út Bjarma, tímarit um kristna trú, 48 bls. fjórum sinnum á ári og er það selt í áskrift. Upplag blaðsins er 1.000 eintök. Nánari upplýsingar eru á bjarmi.is.
|