Kristniboðssambandið


Englavernd PDF Prenta Senda
Föstudagur, 06 Febrúar 2009 15:42
Frásögn frá Kenýju

Höfundur óþekktur


 

- Ég er hræddur! sagði Haleb Kalimbó. - Fílar og bufflar (stór naut) elta mig þegar ég er á leiðinni heim af kristilegu samkomunum. Getur þú fengið einhvern í heimalandi þínu til að biðja Guð að vernda mig fyrir villidýrunum?

Norskur gestur var í heimsókn á kristniboðsstöð í Kenýu, Afríku. Þar hitti hann Kalimbó.

Gesturinn tók mynd af Kalimbó og fór síðan heim til ættlands síns. Þar var trúuð fjölskylda sem lofaði að bera umhyggju fyrir Kalimbó. Þá var Lovísa litla fimm ára gömul. Hún bað Guð á hverju kvöldi að reka fíla og buffla í burtu frá Kalimbó.

Nokkru seinna var gesturinn aftur kominn í heimsókn til Kenýu. Þá hafði Kalimbó merkilega sögu að segja honum:

- Fyrir nokkrum mánuðum var ég á leið heim af samkomu og þurfti að fara gegnum skóg. Þá varð ég þess var að bufflar voru á harða hlaupum á eftir mér.

Ég varð skelfingu lostinn og fór að hrópa til Jesú: - Jesús, hjálpaðu mér!

Þá heyrði ég allt í einu rödd sem sagði greinilega: - Vertu ekki hræddur! Lovísa biður fyrir þér.

Ég vissi hver Lovísa var því að fjölskyldan hafði skrifað mér bréf og sagt að þau bæðu fyrir mér. En hvaða rödd var þetta?

Ég leit við sá þá ókunnugan mann. Hann sagði við mig: - Fylgdu mér!"

Ég fór á eftir manninum - og þá brá svo við að villidýrin hurfu á brott! Við urðum samferða þangað til við komum að þjóðveginum. Þar stóðu sjö ferðalangar og Kenýumaður. Þeir voru að skipta um dekk á bílnum sínum.

- Ert þú einn á ferð? spurðu þeir og virtust forviða.

- Já, svaraði ég.

- En hvar er söngflokkurinn sem var með þér?

- Hvaða söngflokkur? Ég er ekki með neinum söngflokki.

- Jú! Við heyrðum allir til ykkar. Þið genguð í skóginum og voruð að syngja Guði lof.

Þá skildi ég hvernig í öllu lá. Guð hafði heyrt bænir Lovísu litlu og sent heilan englakór og einn engil að auki til þess að leiða mig gegnum skóginn!

Ég sagði ferðamönnunum frá Lovísu og að ég héldi að þeir hefðu heyrt í englum. Svo bað ég fyrir mönnunum. Þeir skildu að Guð hlyti vera lifandi og raunverulegur úr því að hann gæti svarað bænum með þessum hætti. -

Haleb Kalimbó hefur ekki alltaf verið kristinn. Hann var afbrotamaður og sat aftur og aftur í fangelsi. Þegar hann var tekinn fastur í nítjánda skiptið hitti hann mann sem sagði honum frá Jesú, að Jesús gæti frelsað syndara og fyrirgefið þeim. Kalimbó trúði orðum mannsins og varð kristinn.

Það leið ekki á löngu þar til hann var farinn að tala um Jesú við samfanga sína. Þegar hann var látinn laus gerðist hann prédikari í fangelsinu. Seinna hélt hann heim í átthaga sína og sagði fólki sínu frá frelsaranum.

Einu sinni hafði Kalibó gifst. En nú höfðu hjónin ekki búið saman í langan tíma.

Kalimbó lagði af stað að leita konu sinnar. Hann vissi ekki hvar hún var né hvað hún hefði fyrir stafni.

Loksins fann hann hana. Þá var hann kominn alla leið til Tansaníu, landsins fyrir sunnan Kenýu. Þar hafði hún lent í slæmum félagsskap.

- Komdu heim, sagði Kalimbó. - Ég er orðinn kristinn og við skulum byrja upp á nýtt.

- Nei, svaraði konan. - Ég hef hagað mér illa og eyðilagt líf mitt. Ég get ekki komið með þér heim.

- Jú, komdu nú, sagði Kalimbó. - Úr því að Jesús gat frelsað mig getur hann líka frelsað þig.

Að endingu lét konan til leiðast og fór aftur til Kalimbós. Nú eiga þau eitt barn. Þau eru glöð og hamingjusöm og vilja bæði vera lærisveinar Jesú.
 

Dagskrá

23.05.2012 20:00 - 21:00
Kristniboðssamkoma

24.05.2012 16:00 - 18:00
Fundur í Kristniboðsfélagi kvenna

30.05.2012 20:00 - 21:00
Kristniboðssamkoma

31.05.2012 20:00 - 22:00
Föndurkvöld

06.06.2012 20:00 - 21:00
Kristniboðssamkoma



Hafa samband
Senda inn bænarefni