| Kristnir fagna |
|
|
|
| Föstudagur, 06 Febrúar 2009 15:23 |
|
Frásaga frá Eþíópíu Þýðandi: Skúli Svavarsson Ég var á leiðinni frá kristniboðsstöðinni í Dilla til Galana. Leiðin liggur um alræmdan ræningjadal. Þar eru rán, ofbeldi og manndráp algeng. Svartasta heiðni hefur ráðið ríkjum í dalnum þangað til fyrir nokkrum árum að Guðs orð barst þangað. Karlmennirnir drápu aðra karlmenn til þess að sýna að þeir væru hæfir til þess að sjá fyrir fjölskyldu. Mannslífið var lítils metið eins og alltaf í heiðni. Þetta er ekki vegna þess að þeir vilji ekki lifa. Nei, alls ekki. Gúdjimenn verða bara að drepa. Þetta er lögmál sem tíðkast hefur um aldaraðir. Þetta eru bönd sem fjötra þá. Heiðni kallast þau. Satan og illir andar leika fólkið hart. Ég hélt á tösku með guðspjöllum og öðrum kristilegum heftum og undir hendinni hafði ég slitlu Biblíuna mína. Hættulegur maður Ég var stöðvarður í litlum bæ sem heitir Komboltja. Þar var ég yfirheyrður og spurður hvort ég væri að fara og hvað ég væri að gera. Ég sagðist vera á leiðinni til Galane til þess að boða Guðs orð þar. Þeir spurðu mig þá um skilríki sem segðu til um að ég hefði leyfi til þessa. Ég hafði engin plögg frá yfirvöldunum svo að ég svaraði þeim neitandi en bætti við: - Í Biblíunni minni, sem ég er með undir hendinni, stendur að ég eigi að boða Guðs orð, þeim sem ekki þekkja Guð. Leiðtogarnir í bænum komust að þeirri niðurstöðu að maður, sem talaði svona, væri hættulegur. Mér var varpað í fangelsi og síðan var ég fluttur á stað sem heitir Tjalalakto. Þar voru 12 aðrir kristnir fangar. Fangavörðurinn bjó í nágrenni við fangelsið. Hann var mjög illskeyttur og harðhentur. Þetta bitnaði sérstaklega á kristnu föngunum. Hann neitaði þeim um að biðja. Þeir fengu ekki heldur neitt áhald til þess að útbúa sér mat í. (Í Eþíópíu verða fangarnir að hugsa um matinn sinn sjálfir.) Kristnu fangarnir létu þetta ekkert á sig frá. Þeir reyndu að sýna fangaverðinum kristilega umhyggju og kærleika, þann kærleika sem þeir eignuðust þegar þeir byrjuðu að lifa með Jesú. Hver er sterkari en Satan? Dag einn fóru fangavörðurinn og konan hans að rífast. Það endaði með slagsmálum. Meðan þau slógust féll konan allt í einu á gólfið og maðurinn náði ekki sambandi við hana. Af tilburðum hennar skildi hann strax að hún var haldin illum anda. Hvað gat hann nú gert? Hver hafði vald yfir illa andanum? Hann velti ákaft fyrir sér hvað hann ætti að taka til bragðs. Meðan hann var í þessum hugleiðingum kom vinur hans í heimsókn. Hann sá strax konuna þar sem hún lá á gólfinu, haldin illum anda. Þeir litu hvor á annan og svo sagði fangavörðurinn: - Ég verð að ná í kristnu fangana. - Kristnu fangana? Ertu eitthvað skrítinn? Þú sem ert vel menntaður maður trúir þó ekki á kristindóminn? - Ég veit ekki hvað segja skal, sagði fangavörðurinn. - Ég hef tekið eftir því að það er eitthvað við þessa kristnu menn. Það er eins og einhver kraftur geisli frá þeim. Það var niðurdreginn, auðmjúkur maður sem gekk inn í fangelsið og bað kristnu fangana að koma með sér heim. Þeir neituðu. Fangavörðurinn hafði alltaf eitthvað illt í huga. Hvað skyldi hann nú ætla að gera? hugsuðu þeir. En fangavörðurinn hélt áfram og grátbændi þá að koma. Þegar þeir skildu að hann þarfnaðist hjálpar þeirra létu þeir til leiðast og fóru með honum heim. Um leið og þeir stigu inn í kofann engdist konan á gólfinu sundur og saman. Illi andinn í henni hrópaði: - Gerið mér ekki mein! Einn fanganna svaraði andanum: - Í dag skalt þú yfirgefa þessa konu. - Ég yfirgef hana aldrei, svaraði andinn. Þannig héldu kristnu mennirnir og andinn áfram að talast við dálitla stund. En þá kvað við öskur og væl mikið og andinn sagði: - Ég óttast vald ykkar. - Síðan var andinn rekinn út af konunni í máttugu nafni Jesú. Konan varð jafnskjótt frjáls og glöð. Hún reis á fætur og heilsaði kristnu föngunum. Þennan sama dag gáfu bæði fangavörðurinn og kona hans Jesú hjarta sitt og játuðu trúna á hann sem frelsara og Drottin Guð kraftaverkanna. Frá þessari stundu varð fangavörðurinn vinur kristnu fanganna. |
Aðalvalmynd
Dagskrá
23.05.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma
24.05.2012 16:00 -
18:00
Fundur í Kristniboðsfélagi kvenna
30.05.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma
31.05.2012 20:00 -
22:00
Föndurkvöld
06.06.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma



