Kristniboðssambandið


Föstudagurinn langi, en enginn páskamorgunn PDF Prenta Senda
Föstudagur, 06 Febrúar 2009 15:09
Frásögn frá Bólivíu, Suður-Ameríku

Höfundur: Torhild Sandve Birkedal

Þýðandi: Skúli Svavarsson



Það sem vekur athygli nýs kristniboða í Bólivíu eru allar stytturnar af Maríu mey. Þær eru alls staðar. María mey er í verslunum, í áætlunarbílum, í heimahúsum og við vegarbrúnina. Stundum er María með lítið barn í fanginu en oftar liggur barnið við fætur hennar. Í öllum tilvikum er það María mey sem er aðalpersónan.

Fólkið tilbiður Maríu og fórnar til hennar kertaljósum, blómum eða öðru þvílíku. Þegar við erum á ferðalögum sjáum við alltaf Maríu-altari þar sem farið er inn eða út úr þorpi. Þar færa ferðalangar Maríu fórnir sínar, t.d. bílhjól eða aðra bílhluta, til þess að María blessi þá. Þeir sem fórna trúa því að þetta komi í veg fyrir slys á ferðalaginu.

María er aðalpersónan í hátíðahöldunum í dymbilviku í Bólivíu. Fólkið heldur hátíðlegan föstudaginn langa. Þá er efnt til sorgarhátíðar. Farið er í sorgargöngu um bæinn. Fremst í fylkingunni eru menn sem halda á stórri styttu. Hún er borin út úr kaþólsku kirkjunni. Styttan er af Maríu mey með vasaklút í hendinni og slæðu fyrir andlitinu. Hún grætur son sinn sem er dáinn.

Aftar í fylkingu hina sorgmæddu eru hermenn. Þeir halda á fallegri kistu með gullbryddingum. Það er gler í hliðarveggjum kistunnar. Í kistunni er líkan af Jesú með þyrnikórónu.

Fólkið segir að vísu að Jesús hafi dáið fyrir syndir okkar. En hvað leggur það í þau orð? Það er María sem hugur þess snýst um. Allir harma ásamt henni að sonur hennar varð að deyja. Allir eru í svörtum sorgarbúningi og halda á hvítum, logandi kertum sem það fórnar til hinnar grátandi Maríu.

Allflestir hér í Bólivíu vita ekki að Jesús reis upp frá dauðum. Páskadagur er öðrum dögum líkur. Hann er enginn hátíðisdagur. Þess vegna er engin birta og von í hátíðahöldum þeirra um páskana.

Við héldum hátíð á páskadag í kirkjunni okkar í Potosi í Bólivíu. Kirkjan var full. Það var dásamlegt að fá að boða fólkinu að föstudagurinn langi væri ekki endirinn. Jesús reis upp frá dauðum. Hann lifir. Þetta fengum við að segja fólki sem aldrei hafði heyrt það áður.

Vertu með okkur og bið fyrir kristniboðunum í Suður-Ameríku, að andi Guðs noti orðið, sem þeir boða, svo að fólkið geti séð Jesú og frelsast.
 

Dagskrá

23.05.2012 20:00 - 21:00
Kristniboðssamkoma

24.05.2012 16:00 - 18:00
Fundur í Kristniboðsfélagi kvenna

30.05.2012 20:00 - 21:00
Kristniboðssamkoma

31.05.2012 20:00 - 22:00
Föndurkvöld

06.06.2012 20:00 - 21:00
Kristniboðssamkoma



Hafa samband
Senda inn bænarefni