| Ég hef augu mín til fjallana |
|
|
|
| Föstudagur, 06 Febrúar 2009 15:46 |
|
Höfundur: Skúli Svavarsson Hentar unglingum og fullorðnum Um þörfina á kristniboði Afríku Útsýni er mikið og fallegt frá kristniboðsstöðinni í Cheparería í Pókothéraði í Kenýu. Það sem vekur mesta athygli er fjallið Morobus. Það stendur eitt sér á sléttunni og teygir sig til himins. Fjallið er bæði tignarlegt og fallegt. Allt frá því Pókotþjóðflokkurinn kom fyrst á þessar slóðir hefur fólkið óttast fjallið og tilbeðið það. Með ótta hefja Pókotmenn augu sín til Morobus-fjallsins að morgni dags og allt til sólarlags. Andinn í fjallinu er ægilegur. Reiðist hann hindrar hann að regnið falli til jarðar og vökvi jörðina. Þá skrælnar allt og hungur vofir yfir. Andinn sendir líka sjúkdóma á heimili þeirra sem hann hefur reiðst. Hann er voldugur. Enginn getur umflúið reiði hans. Andinn í fjallinu gnæfir yfir sem stöðug ógnun. Getur þú sett þig í spor Pókotmannsins sem hefur augu sín til fjallanna með ótta? Hann ræður ekki við mátt andans. Fórnir hans á fjallinu gagna lítið. Hróp hans er: "Hvaðan kemur mér hjálp?" Þetta er kall mannsins frá Pókot, kall hans til þín persónulega, kall Guðs til þín vegna hans, kall til kristniboðs sem þú verður að taka afstöðu til með jái eða neii, með aðgerð eða aðgerðaleysi. Þegar þú hefur augu þín til fjallanna í nágrenni þínu, minnstu þá tilfinninga Pókotmannsins sem horfir í ótta til fjallanna. Úr stofuglugga kristniboðans í Konsó blasir við gömul fórnarhæð. Efst á hæðinni er skógarlundur þar sem Konsómenn færðu andanum í hæðinni bæði blóðfórnir og fórnir af ávexti jarðar. Konsómenn litu með ótta til fórnarhæðarinnar. Hún var stöðug áminning um tilveru og mátt andanna. Nú er stígurinn upp á fórnarhæðina gróinn. Þar eru ekki færðar fórnir lengur. Kall Konsómannsins: "Hvaðan kemur mér hjálp?" barst til Íslands. Kristniboðsvinir sendu þeim hjálpina, Jesú. Þegar Konsómenn líta nú til hæðarinnar geta þeir sagt með innri ró: "Hjálp mín kemur frá Drottni." |
Aðalvalmynd
Dagskrá
23.05.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma
24.05.2012 16:00 -
18:00
Fundur í Kristniboðsfélagi kvenna
30.05.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma
31.05.2012 20:00 -
22:00
Föndurkvöld
06.06.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma



