| Er þetta hægt? |
|
|
|
| Föstudagur, 06 Febrúar 2009 15:40 |
|
Frásögn frá Pókot, Kenýu Höfundur: Skúli Svavarsson Jessika er í söfnuðinum okkar í Cheparería. Hún hafði ekki komið til kirkju um tíma. Ég spurði því nágranna hennar hvort eitthvað væri að henni. - Já, svaraði hún, - Jessika heldur sig heima við af því að hún er öll bólgin og marin. Hún lítur mjög illa út. - Bólgin og marin? endurtók ég. - Hvað kom fyrir? - Maðurinn hennar barði hana hraustlega. - Hvað segirðu? Hvers vegna gerði hann það? - Það var vegna þess að hún gaf honum ekki sykur í teið. - Hvers vegna gerði hún það ekki? - Hún átti engan sykur til þess að láta í teið. - Já, en hún veit að maðurinn verður að fá sykur í teið. Hvers vegna í ósköpunum kaupir hún ekki sykur ef hana vantar hann? - Hún hefur enga peninga til þess að kaupa fyrir. - Hefur hún enga peninga? Og maðurinn hennar er einn ríkasti maðurinn í Cheparería? - Já, hann er ríkur en hann gefur henni ekki neitt. - Nú, þá getur hann ekki krafist þess að fá sykur í teið. - Jú, hann getur það samkvæmt okkar siðum, og ef hún getur ekki gefið honum það sem hann biður um, þá má hann lemja hana. - En ekki getur hann gert það ef hann lætur hana ekki fá peninga til að kaupa sykur? - Jú, það skiptir engu máli. - Þetta er ekki rétt. Þetta er óréttlátt, sagði ég. - Já, svaraði konan, - en svona er það nú samt og það er ekkert við þessu að gera. Maðurinn hennar er heiðingi og hann lifir samkvæmt sínum heiðna sið. Þú sem ert kristniboði, veist þú ekki að heiðnin er óréttlát? sagði konan að lokum og fór sína leið. - Fagnaðarerindið um Jesú Krist breytir lífi þeirra sem veita því viðtöku. Þeir verða nýir menn. Sá sem er kristinn elskar konuna sína og hjálpar henni. En hvað stoðar það að við vitum þetta ef þeir sem þurfa á þessum boðskap að halda fá ekki að heyra hann? Frumskilyrðið fyrir því að breyting geti orðið er að einhver sé sendur til þess að boða þeim fagnaðarerindið. Er hægt að skorast undan og bregðast þeim sem búa við óréttlæti heiðninnar? |
Aðalvalmynd
Dagskrá
23.05.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma
24.05.2012 16:00 -
18:00
Fundur í Kristniboðsfélagi kvenna
30.05.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma
31.05.2012 20:00 -
22:00
Föndurkvöld
06.06.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma



