Kristniboðssambandið


Angistaróp heiðingjans PDF Prenta Senda
Föstudagur, 06 Febrúar 2009 14:52
Frásögn frá Pókot, Kenýu
Höfundur: Skúli Svavarsson
 

Loriono hét hann. Nafnið þýðir kraftur. Nú var ekki mikill kraftur í Loriono þar sem hann lá á kúskinninu fyrir utan kofann sinn. Hann fann að dauðastundin nálgaðist. Hann var hræddur og hrópaði: - Hvað tekur við? Hver getur hjálpað mér?

Nágrannarnir sátu allt í kringum hann en enginn gat hjálpað. Þeir voru líka hræddur. Þeir höfðu fórnað geit samkvæmt fyrirmælum töframannsins og atað gamla manninn blóði en það virtist ekki stoða neitt.

Loriono hrópar aftur í mikilli angist: - Hvað tekur við? Segið mér það svo að ég geti undirbúið mig.

Þeir líta hver á annan og á Loriono þar sem hann liggur í svitabaði. Enginn segir neitt því að enginn veit hvernig hægt er að undirbúa sig. Algjör þögn ríkir, þögn þrungin vonleysi og vanmáttarkennd.

- Hugsa sér, að liggja í andarstlitrunum í ótta og skelfingu, hrópa á hjálp og fá ekkert svar. Enginn þeirra, sem viðstaddir voru, gat hjálpað. Er þetta hægt? Er þetta réttlátt?

Við sem erum kristin höfum svarið sem getur hjálpað. Jesús frelsar. Guð bað okkur um að segja öllum frá því. Við vitum það sem Loriono þráði að fá að vita en fékk ekki að heyra. Enginn af hans fólki gat sagt: - Jesús er upprisan og lífið og sá sem trúir á hann mun lifa þótt hann deyi. Enginn gat sagt honum frá því að til væri Guðs ríki og að Jesús byggi þeim, sem á hann tryðu, sælustað þar.

Heiðingi - maður sem hrópar í sálarangist á dauðastund og fær enga hjálp.

Oft þegar ég hef boðað fagnaðarerindið á nýjum stað og einhverjir hafa fengið að reyna kraft þess til hjálpræðis hafa menn komið til mín og sagt: - Vissir þú og þinn þjóðflokkur þetta og þið létuð okkur ekki vita það fyrr en nú? Hvers vegna?

Á slíkum stundum er erfitt að segja sannleikann.
 

Dagskrá

23.05.2012 20:00 - 21:00
Kristniboðssamkoma

24.05.2012 16:00 - 18:00
Fundur í Kristniboðsfélagi kvenna

30.05.2012 20:00 - 21:00
Kristniboðssamkoma

31.05.2012 20:00 - 22:00
Föndurkvöld

06.06.2012 20:00 - 21:00
Kristniboðssamkoma



Hafa samband
Senda inn bænarefni