Kristniboðssambandið


Kristniboðskall Alex Berg PDF Prenta Senda
Föstudagur, 06 Febrúar 2009 13:08
Frásaga frá Kína

Þýðandi: Skúli Svavarsson


Kallið til þjónustu mætir okkur á ýmsa vegu. Alex Berg fékk þetta kall fyrst þegar hann var 12 ára. Gamall sjómaður, sem var góður vinur hans, hafði frá mörgu að segja. Dag einn sagði hann við Alex:

"Þegar ég var ungur maður birtist Jesús mér. Þetta kom eins og kall til mín um að ég ætti að fara og flytja boðskapinn um hann. En ég gleymdu þessu og sagði engum frá því. Nú er ég gamall - en þú ert ungur. Þú verður að boða Krist. Ef fólk vissi bara hversu fagur hann er mundi það trúa á hann."

Alex lofaði gamla sjómanninum að hann skyldi boða fólkinu fagnaðarerindið um Jesú Krist.

Alex hélt áfram að ganga í skóla og lærði læknisfræði. Að því loknu fékk hann góða stöðu í heimalandi sínu, Finnlandi.

En þá kom kallið aftur. Nú átti hann í baráttu. Það var ekki eins auðvelt að játast kallinu nú og þegar hann var drengur. Hann hitti marga sem töluðu við hann um neyðina í Kína og hina miklu þörf á læknishjálp þar. Spurt var: "Er ekki til einn einasti læknir í Finnlandi sem er fús til þess að segja upp stöðu sinni heima og fara til Kína sem kristniboði og læknir?"

Alex Berg fannst þessi spurning ekki réttmæt. Hann var á þeirri skoðun að næg verkefni væru fyrir hann sem kristinn lækni í Finnlandi.

Dag einn talaði orð Guðs til hans þannig að hann endurnýjaðist í trúnni. Þá lét spurningin um að fara til Kínverja hann ekki lengur í friði. Orð Guðs hljómaði í eyrum hans: "Ef hveitikornið fellur ekki í jörðina og deyr verður það áfram eitt. En ef það deyr ber það mikinn ávöxt" (Jóh. 12,24).

Áður hafði hann oft sagt sig fúsan til þess að fara út á kristniboðsakurinn þegar Guð kallaði. En hafði Guð ekki kallað?

Það laukst upp fyrir honum að öll svör hans við kalli Guðs höfðu verið eigingjarnar afsakanir. Hann hafði ekki verið fús til þess að segja lausri góðri læknisstöðu sinni sem varð sífellt umfangsmeiri. Hann hafði ekki verið fús til að hverfa frá glæsilegu heimili sínu og tekjum sem myndu tryggja honum þægileg elliár.

Nú gekk hann á bökkum árinnar Aura og hugsaði. Það var engin undankomuleið frá kröfu Guðs. "Sá sem elskar líf sitt glatar því, en sá sem hatar líf sitt í þessum heimi mun varðveita það til eilífs lífs. Sá sem þjónar mér fylgi mér eftir og hvar sem ég er, þar mun og þjónn minn vera" (Jóh. 12,25-26).

Alex Berg bað þess nú í auðmýkt að fá að biðja sömu bænar og hann hafði beðið sem ungur drengur: "Drottinn, hér er ég, send þú mig."

Hann skrifaði konunni sinni eftirfarandi bréf: "Við verðum að selja allt og fylgja Jesú." Og þau seldu allt og urðu sendiboðar Norska lútherska kristniboðssambandsins í Kína.

Alex Berg var drepinn í Kína af ræningjum meðan hann starfaði þar sem kristniboði. Kínverjar elskuðu hann og hörmuðu mjög dauða hans. Konan hans hélt áfram að starfa sem kristniboði alla ævi.
 

Dagskrá

23.05.2012 20:00 - 21:00
Kristniboðssamkoma

24.05.2012 16:00 - 18:00
Fundur í Kristniboðsfélagi kvenna

30.05.2012 20:00 - 21:00
Kristniboðssamkoma

31.05.2012 20:00 - 22:00
Föndurkvöld

06.06.2012 20:00 - 21:00
Kristniboðssamkoma



Hafa samband
Senda inn bænarefni