Kristniboðssambandið


Heiðingi PDF Prenta Senda
Föstudagur, 06 Febrúar 2009 12:59
Frásaga frá Pókot, Kenýu

Höfundur: Skúli Svavarsson


Kristniboðinn spurði: - Hvers vegna ert þú og barnið þitt með allar þessar geitaskinnsræmur um úlnliðina?

- Spámaðurinn okkar sagði að við yrðum að slátra geit og allir yrðu að setja á sig ræmur úr skinni geitarinnar, annars dæju þrjár konur á meðal okkar. Við þorum ekki annað en gera eins og hann segir.

- Heldurðu að þetta dugi?

- Ég veit það ekki. Ég veit ekki hvort þetta er satt. Það eina sem ég veit er það sem spámaðurinn segir og þess vegna verð ég að hlýða honum. -

Hún þekkti ekki sannleikann. Hún lifði í myrkri heiðninnar. Getum við látið þá eiga sig sem lifa í þessu myrkri þegar við vitum sannleikann?
 

Dagskrá

23.05.2012 20:00 - 21:00
Kristniboðssamkoma

24.05.2012 16:00 - 18:00
Fundur í Kristniboðsfélagi kvenna

30.05.2012 20:00 - 21:00
Kristniboðssamkoma

31.05.2012 20:00 - 22:00
Föndurkvöld

06.06.2012 20:00 - 21:00
Kristniboðssamkoma



Hafa samband
Senda inn bænarefni