Kristniboðssambandið


Samson PDF Prenta Senda
Föstudagur, 06 Febrúar 2009 15:59


Samson er 13 ára strákur sem finnst stærðfræði skemmtileg. Hann er slyngur með boga og örvar og hefur hæft rottur, mýs, fugla og slöngu. Hann fer í sunnudagaskóla og ætlar að kvænast þegar hann verður stór.

Samson Toroitich á heima í Pókot í Kenýju. Fríða heimsótti hann þegar hún fór til Kenýju.

Ég varð að ganga í hálftíma upp bratta brekku fyrir ofan íslensku kristniboðsstöðina í Cheparería. Þar stóð húsið hans á litlum bala. Það er að segja það voru tvö hús, eldhúskofi og stærra hús með stofu og svefnherbergi.

Þegar ég kom þangað var búið að sópa hlaðið fyrir framan húsin. Stólum með hekluðum dúkum á hafði verið komið fyrir undir stóru tré. Þeir voru ætlaðir okkur gestunum.

Samson heitir í höfuðið á mjög sterkum manni sem sagt er frá í Biblíunni. Hann fékk nafnið þegar hann var skírður. Hann fer í sunnudagaskóla á hverjum sunnudegi. Eldri systir hans er sunnudagaskólakennarinn. Samson á 11 systkini.

Við lesum í Biblíunni í sunnudagaskólanum, segir Samson og strýkur hendinni í

gegnum hrokkið hárið. Við fáum einnig að sjá myndir. Og við syngjum og biðjum. Síðasta sunnudag lærðum við fjórða boðorðið utanbókar.

Áttu þér einhverja uppáhaldssögu í Biblíunni?

Já, söguna um Esaú og Jakob. Og ég kann líka söng um Samson. Hann er ekki ummig, segir Samson brosandi.

Á hverjum degi hlaupa Samson og systkini hans niður brekkuna til skólans. Skólinn í Cheparería var byggður af Íslendingum. Íslenska kristniboðið hefur borgað bækur handa kennurum og nemendum, einnig bárujárnið á þakið og margar kennslustofur.

Samson lærir margar námsgreinar svo sem: swahili, líffræði, ensku og jarðrækt. Honum finnst enskan erfiðust. Einu sinni í viku lærir hann kristinfræði. Og hvað heldurðu að honum finnist skemmtilegast að gera í frímínútum? Já, það er rétt, auðvitað að spila fótbolta.

Flestir afrískir strákar eru mjög duglegir að skjóta af boga. Samson býr sjálfur til bogann sinn og örvarnar. Það kemur sér vel að eiga boga og örvar þegar maður þarf að gæta geitanna. Fjölskyldan hans á bæði geitur, kýr, kindur og asna.

Einu sinni þegar Samson var að gæta dýranna sá hann eiturslöngu á veginum. Hún var að gleypa í sig rottu. Þá miðaði Samson og andartaki síðar lá slangan dauð!

Samson á sér marga drauma um framtíðina. Hann ætlar að kvænast þegar hann verður fullorðinn vegna þess að maður er ekki mikils metinn í Pókot nema eiga konu. Og svo langar hann að verða kennari.

Hvað langar þig að verða þegar þú verður stór?

Frida Blaker. Úr norska barnablaðinu Blåveisen.

 

Dagskrá

23.05.2012 20:00 - 21:00
Kristniboðssamkoma

24.05.2012 16:00 - 18:00
Fundur í Kristniboðsfélagi kvenna

30.05.2012 20:00 - 21:00
Kristniboðssamkoma

31.05.2012 20:00 - 22:00
Föndurkvöld

06.06.2012 20:00 - 21:00
Kristniboðssamkoma



Hafa samband
Senda inn bænarefni