| Mengesha |
|
|
|
| Föstudagur, 06 Febrúar 2009 15:58 |
|
Þessa sögu skrifaði danski kristniboðinn og hjúkrunarfræðingurinn Ella Einarsen. Hún hefur starfað í Eþíópíu en þar hafa líka íslenskir kristniboðar starfað.
Í fyrsta skipti sem ég hitti Mengesha var hann á sjúkrahúsinu. Ég átti að skipta um umbúðir á ljótu skotsári sem hann fékk á vinstri handlegginn. Ég mun aldrei gleyma óttanum í svörtum augum hans. Mengesha hafði upplifað margt hræðilegt. Það kom ígerð í skotsárið í handleggnum. En sem betur fór var hægt að bjarga handleggnum þó að hendin yrði aldrei söm aftur. Meðferðin tók langan tíma og Mengesha var svo lengi á sjúkrahúsinu að við héldum að fjölskyldan hans hefði gleymt honum. Hann lærði amharísku, tungumálið sem var notað í skólanum og börn kristniboðanna urðu vinir hans. Þegar Mengesha batnaði ók einn af hjúkrunarfræðingunum honum heim í þorpið hans. Þau fundið húsið þar sem móðir hans, bróðir og tvær systur bjuggu. Pabbi hans var dáinn og mamma hans reyndi eins og hún gat að halda fjölskyldunni saman. Ef til vill hafði hún vonað að Mengesha yrði eftir hjá útlendingunum, því hvernig færi fyrir honum sem hafði einungis annan handlegginn? Hann gæti ekki komið að neinu gagni þannig á sig kominn. Það er ekki auðvelt að vera fatlaður í Eþíópíu. Ef Mengesha ætti að geta bjargað sér yrði hann að fá menntun. Kristniboðinn hafði nýlega fengið senda peninga frá bekk í Noregi. Krakkarnir höfðu skrifað að þau vildu gjarnan hjálpa einhverjum sem á þyrfti að halda. Nú gat Mengesha fengið hluta af þessum peningum svo hann gæti farið í skóla. Það kom í ljós að Mengesha var mjög duglegur og samviskusamur. Hann kom ásamt móður sinni í hverju mánuði og fékk skólapeningana. En einn dag kom Mengesha einn. - Hvers vegna er mamma þín ekki með þér? - Mamma er dáin, sagði Mengesha sorgmæddur. Hún var svo þreytt og veik að hún dó. Allt í einu snarbreyttist líf Mengesha. Bæði eldri bróðir hans og systir voru flutt að heiman og Mengesha varð að hætta í skólanum til að hugsa um litlu systur sína sem var fjögra ára. Þetta varð erfiður tími. Kofinn sem systkinin bjuggu í var að hruni kominn. Það var engin hurð og geitur nágrannanna komu inn og átu allt mjölið sem Mengesha hafði keypt á markaðnum. Dag einn kom Mengesha aftur í skólann. Hann og litla systir hans áttu að búa hjá fjölskyldu í nágrenninu. Mengesha var glaður en gleðin stóð ekki lengi. Stuttu seinna urðu þau systkin að flytja aftur. Konan sem þau bjuggu hjá vildi gjarnan fá peningana hans en ekki þau systkinin. Ég veit ekki hvernig Mengisha hefur það núna, en Guð veit það. Vilt þú biðja fyrir honum? Viltu biðja að hann eignist gott trúað heimili og megi verða glaður og öruggur drengur? Úr norska barnablaðinu Blåveisen. |
Aðalvalmynd
Dagskrá
23.05.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma
24.05.2012 16:00 -
18:00
Fundur í Kristniboðsfélagi kvenna
30.05.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma
31.05.2012 20:00 -
22:00
Föndurkvöld
06.06.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma



