| Skíði og fjarsjóður á himnum |
|
|
|
| Föstudagur, 06 Febrúar 2009 15:57 |
|
Frásaga frá Noregi Höfundur: Helga Hugdal Herseth
Það er ekkert skemmtilegt að við höfum aldrei efni á neinu, stynur Ari þegar hann borðar morgunmatinn sinn. Við eigum nóg af öllu, segir mamma hans á meðan hún eys hafragrautnum á diskinn. Nei, við eigum það ekki. Hvers vegna getum við aldrei farið til útlanda í frí? Og hvers vegna fæ ég ekki sjónvarp í herbergið mitt? Og hvers vegna fæ ég ekki nýjustu gerðina af tölvu og ný skíði eins og Böðvar? Ara er mikið niðri fyrir þegar hann segir þetta. Hann er bæði leiður og reiður yfir þessu. Mamma hans hugsar sig um góða stund áður en hún svarar honum. Hún virðist leið. Ég skil að þetta er ekki svo gott, segir hún að lokum. Gott? Hrópar Ari. Þú ættir bara að vita. Ég get aldrei sýnt Böðvari eða hinum vinum mínum það nýjasta, flottasta eða dýrasta af neinu…. Ari brestur í grát. Hann ýtir grautardisknum innar á borðið og leggur svo höfuð sitt á borðið og grætur. Þegar mamma hefur gengið frá eftir morgunverðinn sest hún og ræðir við Ara. Hann lítur ekki upp en er hættur að gráta. Stríða hinir strákarnir þér, Ari minn? Neiii….en…. En þér finnst þetta samt leiðinlegt? Ari lítur ekki upp en kinkar kolli. Þegar ég kynntist pabba þínum og seinna þegar við vorum orðin kærustupar töluðum við um það hvernig við vildum að heimili okkar yrði, sagði mamma hans. Og við urðum sammála um að miklir peningar, nýtt hús og dýr matur væri ekki það sem okkur þótti mikilvægast. Við vildum að sjálfsögðu eiga nóg af peningum - nóg til að gefa börnunum okkar það sem þau þyrftu og nóg til að hjálpa öðrum. Það eru ekki allir eins heppnir og við sem eigum heima á Íslandi. Ég veit það, segir Ari. En það er ekkert gaman og Böðvar… En nú grípur mamma fram í fyrir Ara og segir: - Það allra mikilvægasta fyrir mig og pabba þinn er að bæði við og þið, börnin okkar, skilduð að það er hægt að vera ríkur á annan hátt en að eiga alla hluti. Á annan hátt? Spyr Ari. Já, á annan hátt, segir mamma. Biblían talar um að Guð gefi okkur, sem trúum á Jesú, fjársjóð á himnum. Sá fjársjóður er miklu, miklu meiri en öll auðævi sem við getum safnað okkur hér á jörðinni. Þegar Guð sendi okkur son sinn, Jesú Krist, gaf hann okkur stærstu gjöfina sem hann átti. „Því svo elskaði Guð heiminn, að hann gaf son sinn eingetinn, til þess að hver sem á hann trúir glatist ekki, heldur hafi eilíft líf" (Jh 3.16). Jesú tók á sig okkar refsingu þegar hann dó á krossinum og opnaði okkur aðgang að himninum. Já, en þetta eru allt öðru vísi hlutir, allt öðru vísi auður. Það er rétt hjá þér, svaraði mamma, en samt er hægt að bera Jesú saman við aðra hluti sem okkur finnast mikilvægir og þá sjáum við, að fá að vera vinur Jesú og trúa á hann, er það sem skiptir mestu máli. Ari stóð á fætur. Hann brosti til mömmu sinnar og rölti fram í herbergið sitt. Honum finnst erfitt að skilja þetta en ætlar að hugsa meira um það, en fyrst ætlar hann út og á skíði með Böðvari vini sínum, þó að skíðin hans væru gömul. Helga Hugdal Herseth. Úr barnablaðinu Blåveisen. |
Aðalvalmynd
Dagskrá
23.05.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma
24.05.2012 16:00 -
18:00
Fundur í Kristniboðsfélagi kvenna
30.05.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma
31.05.2012 20:00 -
22:00
Föndurkvöld
06.06.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma



