Kristniboðssambandið


Guðs orð er máttugt PDF Prenta Senda
Föstudagur, 06 Febrúar 2009 15:27

Þýðandi: Skúli Svavarsson

Frásaga frá Afríku


Maður nokkur í Brasilíu, Antoníó frá Mínas, keypti Nýja testamenti og fór með það heim til þess að brenna það. Þegar heim kom var eldurinn dauður í eldstónni.

Hann kveikti upp að nýju og kastaði Nýja testamentinu kæruleysislega á eldinn. En Nýja testamentið vildi ekki brenna. Hann opnaði þá bókina og leysti í sundur blöðin svo að eldurinn næði betur að læsa sig í þessa bók sem hann hataði.

Nýja testamentið opnaðist þar sem Fjallræðan stendur. Antoníó starði í eldinn til þess að fylgjast með hvernig hann eyddi bókinni. Á meðan hann horfði fór hann að taka eftir textanum og hann tók ósjálfrátt að lesa.

Orðin, sem hann las, gagntóku hann svo að hann þreif bókina út úr eldinum. Hann las lengi og gleymdi bæði stað og stund.

Þegar morgungeislarnir skinu inn um gluggann hjá honum stóð hann á fætur og kallaði upp yfir sig: "Ég trúi!"

- - -

Það gerðist um niðdimma nótt í skógi á Sikiley á Ítalíu að herforingi beindi byssuhlaupinu að farandssala sem seldi Biblíur. Hann skipaði honum að kveikja eld og brenna Biblíurnar strax.

Biblíusalinn kveikti eldinn og spurði svo hvort hann mætti lesa smákafla úr hverri bók áður en hann kastaði henni á bálið.

Hann las 23. sálminn úr einni, Biblíunni, söguna um miskunnsama Samverjann úr annarri, úr þeirri næstu las hann Fjallræðuna og síðan 1. Kor. 13, kaflann um kærleikann.

Eftir lestur hvers kafla sagði herforinginn: "Þetta er góð bók. Við skulum ekki brenna hana. Gefðu mér bókina."

Þegar Biblíusalinn hafði lokið við að lesa úr öllum bókunum kom í ljós að engri þeirra hafði verið kastað á bálið. Herforinginn yfirgaf Biblíusalann og hvarf út í myrkrið með bækurnar.

Nokkrum árum seinna birtist herforinginn aftur á eyjunni. Þá var hann orðinn kristinn prestur. Hann þakkaði lestri bókanna þá breytingu sem orðið hafði á lífi hans.

- - -

Vicent Quirega frá Chile í Suður-Ameríku fann nokkrar blaðsíður úr bók sem flóðöldur eftir jarðskjálfta höfðu borið upp á ströndina. Hann las þessar blaðsíður.

Þegar hann hafði lesið þær var hann ekki í rónni fyrr en hann hafði eignast alla bókina sem blöðin voru úr. Þetta voru blöð úr Biblíunni.

Hann varð kristinn við að lesa Biblíuna. Hann helgaði síðan líf sitt því að dreifa þessari blessuðu bók þar sem hún var óþekkt í þorpum Norður-Chile.

 

 

 

Dagskrá

23.05.2012 20:00 - 21:00
Kristniboðssamkoma

24.05.2012 16:00 - 18:00
Fundur í Kristniboðsfélagi kvenna

30.05.2012 20:00 - 21:00
Kristniboðssamkoma

31.05.2012 20:00 - 22:00
Föndurkvöld

06.06.2012 20:00 - 21:00
Kristniboðssamkoma



Hafa samband
Senda inn bænarefni