Kristniboðssambandið


Wilson PDF Prenta Senda
Föstudagur, 06 Febrúar 2009 15:00
Sagan um Wilson er sönn saga um dreng með hjartasjúkdóm. Sveitin hans heitir Chemutlokotyo og er í Pókot, hátt uppi í fjöllunum fyrir ofan kristniboðsstöðina í Chesta í Kenýju. Það var hér sem hann fæddist, elstur í röð níu systkina. Skólinn var í næsta nágrenni við heimili hans og faðir hans vildi mjög gjarnan að sonur hans fengi menntun.

Wilson fannst gaman í skólanum, fannst gaman í landafræði, ensku og stærðfræði. Kennarinn sagði að það byggi góður námsmaður í drengnum en tók jafnframt eftir því að honum leið stundum illa. Honum gekk ekki illa í náminu en heilsan var ekki góð. Það var sérstaklega slæmt daginn sem hann átti að taka samræmt próf eftir átta ára skólagöngu. Þá var Wilson tólf ára. Allir nemendurnir í Chemutlokotyo urðu að fara til Chesta til að þreyta prófið ásamt nemendum úr öðrum skólum í nágrenninu.

Ferðin reyndist Wilson erfið þó að leiðin lægi niður á við. Hann átti erfitt með andardráttinn, varð oft að hósta og halda um brjóstið. Eiginlega hafði hann fundið fyrir þessu lengi, en hann vildi ekki vera veikur. Þess vegna sagði hann engum frá verkjunum. En í dag var ekki hægt að leyna þeim. Hann var með grátstafinn í kverkunum í stærðfræðiprófinu. Hann vildi ekki verða veikur, hann langaði að halda áfram námi.

Niðurstaðan

Prófinu var lokið og Wilson fékk lélegar einkunnir. Þar með var frekara nám úr sögunni. Það eina sem hann huggaði sig við var, að þó að hann vildi fara í framhaldsskóla, hefði faðir hans hvort sem er ekki haft efni á að greiða skólagjöldin fyrir hann. Svo kannski skipti þetta engu máli…..

Dagarnir liðu. Wilson hélt sig heima við, gætti geitanna, vann á akrinum og hjálpaði til við hitt og þetta. Hann var smávaxinn miðað við aldur og hann var grennri en flestir aðrir. Aðeins brjóstkassinn var stór þar sem hjartað barðist ótt og títt.

Öðru hverju læddist óttinn að honum, sérstaklega á kvöldin þegar hann lá á kúskinninu í myrkrinu með systkinum sínum og kiðlingunum. Hvað ætli verði um hann?

Tororot er víðsfjarri

Hann hafði heyrt talað um Guð í skólanum. Pókotfólkið veit hver Guð er. Það kallar hann Tororot og hann skapaði heiminn. En Tororot er svo langt í burtu. Hann er fjarri mönnunum.

Sumir af nágrönnum Samsonar fóru í kirkju og sögðu að Guð væri góður og þætti vænt um alla menn. Gæti það verið satt? Gæti Guð hjálpað honum? Wilson efaðist um það.

Daktari kemur

Dag einn kom „daktari" (hjúkrunarfræðingur og kristniboði) til Chemutlokotyo með lyf og ýmislegt annað í bakpokanum sínum. Hún kom öðru hverju og þá fóru margar mæður með börnin sín til hennar. Í dag ætlaði Wilson að tala við hana. Ef til vill gæti hann fengið hjálp.

Stóra hjartað hans sló ennþá hraðar þegar hann herti upp hugann og gekk að borðinu þar sem lyfin voru. Daktari hlustaði hann og kleip í fætur hans sem í dag voru sérlega bólgnir við ökklana. Þeir voru það oft.

- Ég held að þú þurfir að fara á spítala, Wilson, sagði hún eftir að hafa skoðað hann. Hann hafði búist við þessu svari, en líkaði það ekki. Hvernig átti hann að geta farið? Hver gæti fylgt honum á spítalann? Mamma hans hafði svo mörg lítil börn að hugsa um og pabbi hans hafði nóg að gera á akrinum og að gæta dýranna.

Föður hans tókst samt að fara með drengnum sínum á sjúkrahúsið í Kapengúría. Læknarnir komust fljótlega að þeirri niðurstöðu að hann yrði að fara til frekari skoðunar á Kenýattasjúkrahúsið í Nairóbí. Þangað voru fimm hundruð kílómetrar og dýrt að komast þangað. Nairóbí var höfuðborg landsins og allt var þar öðru vísi en í Pókot þar sem Wilson átti heima. En nú hafði vaknað von í hjarta hans. Vonandi gæti hann farið.

Pabbi selur kú

Þegar börn kristniboðanna áttu að fara til Nairóbí í skólann sinn fékk Wilson að verða þeim samferða. Umræddan morgun stóð Wilson tilbúinn við bílinn. Hann var í grænum íþróttafötum með taupoka sem í var peningaveski með 900 shillingum. Faðir hans hafði látið hann fá peningana þegar hann hafði selt einu kúna sem hann átti. Þetta voru miklir peningar fyrir Pókotdreng.

Wilson fannst hann einn og yfirgefinn. Varir hans titruðu. Tár fylltu augu hans en hann strauk þau burt þegar þau ætluðu að renna niður kinnarnar. Hann yrði að standa sig núna. Hann sem var Pókotmaður.

Áður en bíllinn lagði af stað gáfu kristniboðarnir honum Nýja testamentið á hans eigin tungumáli, pókotmáli. - Þú getur lesið í því, Wilson, taktu það með þér. Þú finnur Guð í því og hér færðu að kynnast Jesú sem elskar þig. Leggðu framtíð þína í hans hendur.

Wilson þakkaði fyrir sig og strauk fingrinum yfir þessa fínu bók sem hann lagði svo í pokann sinn.

Hjartaaðgerð ekki möguleg

Það leið langur tími áður en kristniboðarnir fréttu nokkuð af Wilson. En dag einn kom hann aftur til Chesta. Þá hafði hann gengið með erfiðismunum niður fjallið úr sveitinni sinni. Hann hafði verið átta klukkutíma á leiðinni en venjulega tekur þessi ferð aðeins eina klukkustund. Hjartað hans var ekki í lagi.

Kristniboðarnir ákváðu að fara strax með hann til Kapengúría. Þar var tekið á móti honum á sjúkrahúsinu. En því miður dugðu ekki bara lyf handa Wilson. Þau hjálpa bara í stuttan tíma. Aðeins hjartauppskurður gæti hjálpað honum en það er ekki einfalt þegar maður býr í þróunarlandi. Þá væri betra að búa í Evrópu eða Ameríku.

Engir peningar til

Wilson hefur farið margar ferðir til Nairóbí. Hann er orðinn vanur þeim, en nú á hann ekki meiri peninga. Það er búið að rannsaka hjarta hans í bak og fyrir. Hann er búinn að taka margar pillur. Hann hefur eignast von en misst hana aftur. Hann er lifandi en hversu lengi verður hann það?

Lífið heldur áfram, hann er mest hjá foreldrum sínum í Chemutlokoyo. Þar líður honum vel. En að lifa í óvissu er erfitt. Mun hann nokkurn tíma fá bata?

Hann les stundum í Nýja testamentinu sínu. Les um Jesú, lífið og eilífðina. Mun hann eignast eilíft líf?

Þó að hann geti ekki fengið nýtt hjarta í líkama sinn þá getur Jesús gefið honum hjarta vonar og trúar. „Því svo elskaði Guð heiminn, að hann gaf son sinn eingetinn, til þess að hver sem á hann trúir glatist ekki, heldur hafi eilíft líf.“ (Jóh 3.16).

Astri Mangelröd. Blaaveisen.
 

Dagskrá

23.05.2012 20:00 - 21:00
Kristniboðssamkoma

24.05.2012 16:00 - 18:00
Fundur í Kristniboðsfélagi kvenna

30.05.2012 20:00 - 21:00
Kristniboðssamkoma

31.05.2012 20:00 - 22:00
Föndurkvöld

06.06.2012 20:00 - 21:00
Kristniboðssamkoma



Hafa samband
Senda inn bænarefni