Kristniboðssambandið


Umkringd af lögreglunni PDF Prenta Senda
Föstudagur, 06 Febrúar 2009 14:58

Sönn saga frá Rúmeníu

Ég man vel eftir síðustu páskunum mínum í Rúmeníu. Páskarnir voru í apríl. Grasið var orðið grænt og laufin á trjánum útsprungin. Við, hin kristnu, vildum svo gjarnan halda upp á páskana án þess að lögreglan sæi hvað við værum að gera því að í heimsókn hjá okkur var maður sem var eftirlýstur af lögreglunni vegna trúar sinnar.

Við hittumst í skógarrjóðri í hlíðinni utan við þorpið sem ég átti heima í. Hæðin var skógi- og kjarrivaxin. Til að komast upp á hana varð að aka í ótal beygjum eða ganga upp snarbratta brekkuna.

Fyrir uppreisnina í Rúmeníu á jólunum árið 1989 máttu kristnir menn ekki safnast saman til helgihalds, alla veganna ekki á heimilum eða úti í skóginum. En þeir sem tóku áhættuna urðu að teysta Guði og vera fúsir að taka afleiðingunum, ef upp komst.

Þegar við vorum öll komin upp á hæðina hófst guðsþjónustan. Við sungum hástöfum og þökkuðum Jesú fyrir upprisuna á meðan að flugurnar suðuðu og fuglarnir kvökuðu. Við báðum, sungum og hlustuðum á gestinn predika og við höfðum altarisgöngu. Við fögnuðum páskunum af mikilli gleði.

Undir síðasta sálminum tókum við eftir því að lögreglan var búin að umkringja okkur. Hvað áttum við að gera? Lögreglumennirnir héldu upp hæðina. Þeir höfðu með sér sporhunda. Lögreglubifreið nálgaðist líka. Þá vissum við að við yrðum handtekin. Í skelfingu okkar hrópuðum við til Guðs. En engin undankomuleið var sjáanleg.

En áður en lögreglan náði upp til okkar hvessti og úrhellisrigning skall á. Við vorum skyndilega umlukin stormi. Vindurinn var svo mikill að fræ blómanna og trjánna fuku um eins og snjór. Von kviknaði í hjörtum okkar. Hundarnir gátu ekki þefað okkur uppi í bleytunni. Þeir sáu okkur heldur ekki. Við hlupum á harða spretti niður hæðina og gripum í greinar trjánna á leiðinni til að detta ekki. Við vorum niðri á mettíma. Við vorum blaut, skítug og rispuð en okkur tókst að komast undan lögreglunni. Guð hafði hjálpað okkur.

Þennan sunnudag lærðum við að enginn hlutur er Guði um megn.

Úr norska barnablaðinu Blåveisen.

 

Dagskrá

23.05.2012 20:00 - 21:00
Kristniboðssamkoma

24.05.2012 16:00 - 18:00
Fundur í Kristniboðsfélagi kvenna

30.05.2012 20:00 - 21:00
Kristniboðssamkoma

31.05.2012 20:00 - 22:00
Föndurkvöld

06.06.2012 20:00 - 21:00
Kristniboðssamkoma



Hafa samband
Senda inn bænarefni