Kristniboðssambandið


Litla stúlkan frá Búra PDF Prenta Senda
Föstudagur, 06 Febrúar 2009 14:24
Frásaga frá Voitó, Eþíópíu

Höfundur: Skúli Svavarsson


Í nágrenni við stöðina, sem kristniboðarnir okkar reistu í Voitódalnum í Eþíópíu, eru tvö lítil þorp. Annað þeirra heitir Búra. Þar búa aðeins nokkrar fjölskyldur. Kristniboðarnir fara oft í heimsókn þangað og tala við fólkið, segja því frá Jesú og hjálpa þeim sem eru veikir.

Mörg börn fæðast í Voitó. En sum þeirra deyja ung vegna fátæktar og sjúkdóma og oft eru börn borin út vegna trúarbragða fólksins. Þess vegna eru fá börn í þorpunum. Kristniboðarnir þekkja öll börnin í nágrannaþorpinu Búra.

Einn daginn, þegar þeir fóru í heimsókn til Búra, tóku þeir eftir því að lítil tveggja ára stúlka var horfin. Þeir spurðu eftir henni og var sagt að hún væri dáin. Þetta þótti þeim skrítið því að þeir höfðu ekki heyrt að hún væri veik. Þeir sáu líka á fólkinu að það var ekki að segja satt heldur leyndu einhverju fyrir þeim.

Það er margt í trúarbrögðum fólksins í Voitódalnum sem veldur því að lítil börn hverfa. Kristniboðarnir héldu því áfram að spyrja. Þá var þeim sagt að stúlkan hefði verið gefin verslunarmanni sem átti leið hjá.

Móðir litlu stúlkunnar átti von á öðru barni. En vegna þess að stúlkan hennar var ekki búin að fá tennurnar varð hún að deyja og líka litla barnið sem móðirin átti eftir að fæða. Þetta var öllum mikið sorgarefni. En ef þetta yrði ekki gert yrðu andarnir reiðir og myndu hefna sín grimmilega á öllum í þorpinu.

Seinna sögðu prédikararnir, sem vinna með kristniboðunum, að þeir hefðu farið til Gávadaþjóðflokksins sem á heima í fjöllunum fyrir austan Voitódalinn. Þar hittu þeir kristinn verslunarmann sem var nýkominn frá Voitó. Hann sagði þeim að hann hefði séð fólk frá Búra koma gangandi með litla stúlku á leið niður að ánni.

Hann spurði hvað þeir ætluðu að gera við þessa stúlku. Þeir sögðu að vegna reiði andanna þyrftu þeir að losa sig við hana og kasta henni í ána.

Maðurinn spurði þá hvort hann mætti ekki taka stúlkuna. Þeir féllust á það ef hann færi strax með hana langt í burtu og kæmi aldrei með hana aftur til Voitó. Enginn mátti vita að hún væri lifandi.

Þannig eru trúarbrögð fólksins. - Jesús kom til að bjarga þeim sem óttast andana. Þess vegna viljum við senda kristniboða til fólksins svo að það fái að heyra um Jesú.

Hann vill að við hjálpum öll til við að bjarga, líka þú. Vertu með að biðja fyrir starfinu í Voitó, að kristniboðarnir geti bjargað mörgum.
 

Dagskrá

23.05.2012 20:00 - 21:00
Kristniboðssamkoma

24.05.2012 16:00 - 18:00
Fundur í Kristniboðsfélagi kvenna

30.05.2012 20:00 - 21:00
Kristniboðssamkoma

31.05.2012 20:00 - 22:00
Föndurkvöld

06.06.2012 20:00 - 21:00
Kristniboðssamkoma



Hafa samband
Senda inn bænarefni