| Metekko bjargað úr lífsháska |
|
|
|
| Föstudagur, 06 Febrúar 2009 13:21 |
|
Saga frá Eþíópíu Ljóta, lúsuga hýenan þín. Metekko hugsaði um þessi orð þegar hann settist í grasið. Hann rak endann á spjótinu niður í jörðina. Honum líkaði ekki að hugsa um þessi ljótu orð sem hann hafði sagt. Kasa var enginn hýena. Og hann var ekki lúsugur heldur. Reiður og vonsvikinn tók Metekko upp stein. Hann stóð á fætur og þeytti honum í rauða kú sem var á leið í burtu frá hjörðinni. Kýrin tók kipp þegar steinninn hæfði hana í bakið. Hún snéri við og kom tilbaka. Kýrin leit út fyrir að vera óttaslegin. Jafn óttaslegin og Kasa hafði verið. Metekko hafði otað spjótinu sínu ógnandi að honum og rekið hann í burtu. Kasa hefði aldrei átt að segja að Jesús væri ekki sonur Guðs, sagði Metekko hátt við sjálfan sig. Kýrin sem næst honum stóð leit upp og horfði á hann. Svo baulaði hún hátt. Dimm ský höfðu hrannast upp yfir fjöllunum í suðri. Metekko fannst hann heyra í þrumu í fjarlægð. Það rignir greinilega í fjöllunum. Dagurinn leit ekki út fyrir að verða góður. Hann hófst með því að Kasa vildi kenna honum að biðja eins og faðir hans var vanur að gera. Vinurinn hafði lagt peysuna sína á jörðina, þvegið sér hátíðlega í framan og þvegið hendurnar með vatni úr vatnsflöskunni sinni. Loks hafði hann þvegið vandlega munn sinn með einum fingri. Þá beygði hann sig niður og snéri í austurátt og sagði margsinnis: „Allah er mikill". Ég bið til Jesú, sagði Metekko og síðan fóru þeir að rífast. Þegar Kasa hélt því fram að Guð ætti engan son og að Jesús væri bara spámaður reiddist Metekko. Hann hentist á Kasa og þreif í hann. Hýena, öskraði hann. Lúsablesi. Komdu þér í burtu með lýsnar þínar og látti guðinn þinn tína þær upp! Snautaðu heim! öskraði Metekko og Kasa litli sleppti spjótinu sínu og hljóp grátandi inn í þyrnirunnann og faldi sig. Núna dreifði kúahjörðin hans sér um alla sléttuna. Ef það færi að rigna gæti farið illa fyrir þeim. Í hjarta sér vissi Metekko að hann var ekki bara reiður út í Kasa út af Jesú. Hann var líka reiður út af öllum feitu, fallegu kúnum sem faðir Kasa átti. Hann fékk sting í hjartað í hvert sinn sem hann bar þær saman við kýrnar sem pabbi hans átti. Kýrnar fjórar sem hann gætti voru vesælar í samanburði við stóra flokkinn sem Kasa gætti. Nú féllu fyrstu droparnir. Rykið rauk upp þegar droparnir féllu á þurra jörðina. Metekko stóð á fætur. Það var best að reka dýrin undir stóra fórnartréð hinum megin við árfarveginn áður en komin væri ausandi rigning. Með ákveðnum skipunum tókst honum að reka kýrnar út í drulluna við árfarveginn. Hann kastaði drulluboltum í aftasta kálfinn þar til allar kýrnar voru komnar á öruggan stað á hinum árbakkanum. Það hafði rignt gríðarlega mikið í fjöllunum. Fyrstu droparnir höfðu safnast í lítinn læk í árfarveginum sem reif með sér þyrnigreinar og laufblöð. Vatnið hafði að lokum myndað stíflu úr kjarri, torfi og greinum. Stíflan varð stærri og stærri þar til hún brast. Það kom fyrir að vatn sem braut sér leið úr svona stíflum tækju með sér heilu þorpin. Og enn meira vatn vildi fá að komast með. Þegar Metekko ætlaði að stökkva yfir á hinn bakkann fór illa. Kýrnar voru komnar yfir en Metekko rann aftur á bak og fann að fætur hans sukku upp að lærum. Honum varð strax ljóst að hann kæmist aldrei upp af sjálfsdáðum. Fullur angistar og ótta hrópaði hann upp í himininn: Jesús, þú sem ert sonur Guðs. Hjálpaðu Metekko, hirðinum í Akasíudalnum nálægt Addis Abeba í Eþíópíu! Öskur hans bergmálaði í hæðunum í kring. Ein kýrin sem stóð örugg í skjóli trjánna leit undrandi á hann. Örvæntingarfullur reyndi hann að losa sig. Hann braut spjótið sitt og missti það. Og hann sökk alltaf dýpra og dýpra. Hann vissi af reynslu að aðeins í hálfrar stundar fjarlægð, þar sem hýenurnar áttu greni, óx áin og kæmi æðandi á hverri stundu. Kúahirðirinn Metekko fann hvernig hjartað barðist í brjósti hans. Dauðinn var óumflýjanlegur. Vatnið mundi hrifsa hann til sín eins og rottu. Lækurinn yrði bráðlega að stórfljóti sem kæmi mórauð og beljandi eftir árfarveginum og hrifi hann með sér. Ef hann hefði nú ekki rekið Kasa í burtu. Var Guð að refsa honum fyrir að vera svona slæmur? Metekko beit sig í vörina og hreinsaði burt drullu af enni sér. Regn og tár runnu niður kinnar hans á meðan hann barðist fyrir lífi sínu. Jesús, hrópaði hann. Líttu til Eþíópíu. Líttu hingað og hjálpaðu mér. Hann hrópaði af öllum lífs og sálarkröftum. Svo leit hann niður og axlirnar hristust af ekka og gráti. Þá kom hann auga á svartan hártoppinn á Kasa á árbakkanum. Mundi hann hjálpa honum eða mundi hann bara horfa á þegar hann drukknaði í ánni? Hann rétti hendur sínar í átt til hans og hrópaði: Hjálpaðu mér. Vertu svo góður, ekki að fara frá mér. Kasa hikaði augnablik en renndi sér svo niður bakkann og rétti hönd sína í átt að Metekko þar til hann náði taki á henni. Það heyrðist skvamp í drullunni þegar fætur Metekko losnuðu og hann gat skreiðst upp á bakkann. Drengirnir skriðu eins hratt og þeir gátu þar til þeir komust á öruggan stað hátt uppi á bakkanum. Þar stóðu þeir enn þegar áin kom æðandi niður árfarveginn. Jörðin hristist og skalf þegar vatnið skall á bakkanum og hreif með sér allt sem fyrir varð. Þú bjargaðir lífi mínu, sagði Metekko. Hann skalf svo hann nötraði. Áin rann brún og skítug fyrir neðan þá. Hún var þegar komin yfir staðinn þar sem Metekko var fastur. Þú bjargaðir mér, þó að ég hefði kallað þig…… orðin voru of hryllileg til að endurtaka þau. Hann deplaði augunum til að tárin sæust ekki og leit á Kasa. Hýenu, sagði Kasa lágt. Hann snökkti líka. Stuttu seinna mátti sjá tvo kúahirða á leið eftir sléttunni í átt að kúahjörðinni. Þeir héldu um axlir hvors annars. Þegar þeir höfðu safnað dýrunum saman og stóðu undir stóra trénu í skjóli fyrir rigningunni hét Metekko því með sjálfum sér að frá og með þessum degi skyldi hann biðja fyrir Kasa á hverjum degi. Hann skyldi biðja til Guðs alveg þar til Kasa skildi að Guð elskaði hann. Ég lofa því sagði hann hátíðlega.. Úr norska barnablaðinu Blåveisen. |
Aðalvalmynd
Dagskrá
23.05.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma
24.05.2012 16:00 -
18:00
Fundur í Kristniboðsfélagi kvenna
30.05.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma
31.05.2012 20:00 -
22:00
Föndurkvöld
06.06.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma



