| Hirðirinn |
|
|
|
| Föstudagur, 06 Febrúar 2009 13:01 |
|
Leikþáttur um Pókotdreng í Kenýu Höfundur: Skúli Svavarsson Persónur: S Sögumaður. K Kristniboði. L Linganyang. P 1-5 Pókotmenn. Sögusviðið er lítið, autt svæði en allt í kring eru þyrnirunnar. Þarna sitja fimm Pókotmenn. Á bak við runnana er Linganyang að gæta geita föður síns. S: Við erum stödd í Pókothéraði í Vestur-Kenýu. Íslenskir kristniboðar hafa sent þangað kristniboða. Þeir Pókotmenn, sem búa á staðnum þar sem þetta gerist, eru hirðingjar. Það er fólk sem lifir á kvikfénaði og flakkar um með hjarðir sínar í leit að beitilandi. Þetta er mjög erfitt líf. Búpeningurinn er magur og gefur lítið af sér. Matur er því langt frá því að vera nægilegur. Húsin sem fólkið byggir eru ákaflega hrörleg. Klæðnaður er nær enginn. Oftast er hann búinn til úr geitaskinni. Oft er það verkefni lítilla drengja að gæta hjarðanna. Fólkið, sem hér býr, er heiðingjar. Það tilbiður sól, tungl og stjörnur og óttast þetta og reynir að vingast við himintunglin með því að færa þeim gjafir, fórnir. Auk þess óttast menn anda forfeðranna. Þá verður einnig að blíðka með því að fórna þeim einhverju. Annars valda þeir erfiðleikum og tjóni. Andaverurnar eru alls staðar í leynum, bak við stein, runna eða tré. K (gengur inn á sviðið þar sem Pókotmennirnir fimm sitja): Komið þið sælir. Hvað er að frétta? P 1-5 (svara í kór): Mmmmmg. K: Má ég segja nokkur orð við ykkur? Ég er með orðsendingu til ykkar frá Guði. (Pókotmennirnir horfa allir undrunaraugum á kristniboðann.) P 1: Þú mátt tala. K: Þakka ykkur fyrir. Orðsendingin, sem ég er með til ykkar, er skrifuð í bókina sem ég er með hér. Hún heitir Biblía og er orð frá Guði til ykkar og allra manna. Guð hefur opinberað sjálfan sig í þessari bók. Hann vill að allir þekki sig og að öllum líði vel. P 1: Við þekkjum ekki Guð. Hann hefur yfirgefið okkur. P 2: Við höfum bara andana og það er erfitt að gera þá ánægða. P 3: Við viljum heyra hvað Guð segir. (K opnar Biblíu og les Jóh. 10,11-15. Eftir lesturinn er þögn stundarkorn. P 1 lítur spurnaraugum á kristniboðann. L, sem er hálfnakinn og óhreinn, reynir að fylgjast með því sem kristniboðinn er að segja. Hann reynir að láta engan taka eftir því að hann er þarna. Ótti skín úr andliti hans.) K: Jesús er góði hirðirinn. Það var Guð sem sendi hann til þess að bjarga ykkur frá öllu illu og til þess að vernda ykkur frá öllu illu. Jesús elskar ykkur alla. Hann bæði vill og getur hjálpað því að hann er sonur Guðs. Þetta hef ég reynt. Hann gefur ykkur líka samband við Guð. S: Lynganyang er mjög hugsi. Hvað var kristniboðinn að segja? Hann reyndi að fylgjast með því en þorði ekki að láta neinn sjá það. Pabbi hans gæti orðið reiður ef hann frétti að hann hefði verið að hlusta á útlendinginn. Hann varð að fá að vita meira um góða hirðinn sem vildi gæta hans. P 2: Getur maðurinn, sem þú varst að tala um, verndað okkur fyrir Túrkana-ræningjunum sem alltaf eru að koma og ræna kúnum okkar? K: Já, honum er ekkert um megn. P 4: Heldurðu að hann geti líka verndað okkur gegn öndunum sem við óttumst? K: Já, örugglega. Það er einmitt það sem hann vill gera. P 5: Ertu nú alveg viss um að hann geti það? Þeir eru ægilega voldugir. Enginn hirðir ræður við þá. K: Já, Jesús getur það alveg áreiðanlega. Hann hefur sigrað allt hið illa, meira að segja dauðann. Hann hefur allt vald. Jesús er sterkastur. P 4: Þú segir fréttir! Þetta var nýtt fyrir okkur, meira en það sem við héldum að væri hægt. K: Þar sem Jesús fær að dvelja, þar verður hið illa að víkja. P 4: Við verðum að fá að kynnast þessu betur. P 5: Viltu biðja hann að gæta okkar? K: Ég skal biðja hann strax. (Spennir greipar og biður) Góði Jesús, þessir menn vilja kynnast þér. Kallaðu á einhverja til þess að hjálpa þeim. Láttu fólkið á Íslandi vita að þeir þurfa á hjálp að halda. Kannski einhver þar vilji biðja fyrir þeim og senda Guðs orð til þeirra. Verndaðu þá svo frá öllu illu. Amen. (Lítur þangað sem Linganyang er í felum, segir við mennina:) Kallið á drenginn sem er á bak við runnana. Hann hefur fylgst svo vel með öllu. Ég vil tala við hann. (Pókotmennirnir horfa þangað sem drengurinn felur sig.) P 1 (kallar): Linganyang, kristniboðinn vill tala við þig. (Linganyang tekur á rás, reynir að fela sig betur milli runnanna.) P 1-5 (skellihlæja, kalla hver í kapp við annan): Linganyang, svona, komdu! S: Linganyang þorði ekki að koma heldur þrengdi sér inn á milli þyrnirunnanna og reyndi að fela sig. Það sem kristniboðinn hafði sagt lét hann ekki í friði. Hann sá fyrir sér góðan hirði sem elskaði alla menn og vildi gera allt til að hjálpa þeim. Það væri nú gott ef til væri hirðir sem gæti verndað mennina og hjálpað þeim. Gat það líka átt við fátæka hirðingjadrengi eins og hann? Linganyang var oft hræddur þegar hann sat einn yfir geitum föður síns. Oft hafði hann heyrt í villidýrunum og stundum rétt náð að forða sér frá þeim. Hann var líka hræddur um að ræningjar frá Túrkanaþjóðflokknum kæmu og rændu honum og skepnunum. Réð góði hirðirinn við þá og líka villidýrin? Kristniboðinn sagði að hann hefði vald yfir öllu, já, meira að segja öndunum. Þeir voru verstir. Enginn réð við þá. Óttinn við þá sótti sérstaklega að honum þegar hann sat einn yfir geitunum eða allt var kyrrt og rótt á nóttunni og hann gat ekki sofið. Gat Jesús verndað hann? Linganyang hafði oft verndað geitur föður síns fyrir óargadýrum og frelsað þær úr gildru eða sjálfheldu. Það var skylda hans sem hirðis. Mundi Jesús gera það sama fyrir hann ef hann yrði hans hirðir? L (skríður úr felustað sínum, fer beint til kristniboðans og horfir í augu hans með bænasvip): Vill Jesús líka vera minn hirðir? K: Já, hann vill það. L: Hvernig verður hann minn hirðir? K: Það skal ég segja þér með því að lesa fyrir þig það sem Jesús sagði sjálfur. Það stendur í Biblíunni, Jóh. 10,27-28: "Mínir sauðir heyra mína raust og ég þekki þá og þeir fylgja mér. Ég gef þeim eilíft líf og þeir skulu aldrei að eilífu glatast og enginn skal slíta þá úr hendi minni." Lingyang, nú hefur þú heyrt raust Jesú og komið. Ef þú fylgir honum, þá er hann hirðir þinn og vill annast þig á allan hátt. Þeir sem koma og hlusta á það sem Jesús segir í orði sínu og fara eftir því eru í hópnum sem Jesús þekkir og gætir. L: Ég vil fylgja honum. Það hlýtur að vera gott. |
Aðalvalmynd
Dagskrá
23.05.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma
24.05.2012 16:00 -
18:00
Fundur í Kristniboðsfélagi kvenna
30.05.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma
31.05.2012 20:00 -
22:00
Föndurkvöld
06.06.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma



