Kristniboðssambandið


Nýjustu fréttir PDF Prenta Senda

Forysta prestakallsins í Cehpareria
Af vettvangi safnaðatengslanna eru góðar fréttir. Kirkjuþing 2011 ályktaði um stefnu Þjóðkirkjunnar um kristniboð og vék þar sérstaklega að safnaðatengslunum. Það er von okkar sem að þeim vinnum að af spretti almennur áhugi á kristniboði í þeim söfnuðum sem inn í það verkefni ganga. Það er hið raunverulega markmið að sérhver söfnuður á landinu gangist við skyldu sinni við boð Drottins um að gera allar þjóðir að lærisveinum, ekki bara eigin þjóð þó sú skylda sé ekki látin liggja í láginni, jafnvel fremur hugað að heimatrúboði í einhverri mynd.

Jafnframt hefur glaðnað yfir safnaðatengslamynduninni og nýtt á döfinni í þeim efnum. Staðan er þannig að nú þegar eru þrír söfnuðir með tengsl við kirkjur í Eþíópíu: Hallgrímskirkja, Neskirkja og Laugarneskirkja.

Við Pókot: Grensáskirkja, Dómkirkjan, Vopnafjarðarkirkja, Akureyrarkirkja, Grafarvogskirkja, Vídalínskirkja, Hjallakirkja og Kópavogskirkja.

Í tilferð eru: Lindakirkja, Digraneskirkja, Áskirkja, Egilstaðakirkja og Lágafellskirkja. Fleiri eru á umræðustigi.

Hallgrímskirkja hefur lengi haft lifandi tengsl við Konsó og hefur Margrét Hróbjartsdóttir verið ljósmóðir þess starfs. Neskirkja hefur lokið fimm ára samstarfsáætlun við Waddera og leitar endurnýjunar þess. Í Laugarneskirkju eru Eþíópíumenn sem söfnuðurinn veitir stuðning hérlendis og söfnuði þeirra þar.

Sr Ólafur Jóhannsson og Þóra kona hans stóðu ásamt Grensássöfnuði fyrir fjáröflun til kirkjubyggingar í Cheparería í Pókot , miðstöð í samnefndu héraði þar sem lútherskir eru fjölmennir og munaði mjög um það myndarlega framtak. Dómkirkjan hefur sent fjárhæðir til starfs meðal götubarna í Makutano í Pókot en þar er dómkirkja biskupsdæmisins sem og lítilsháttar stuðning við byggingu kirkju í Bendera sem er ein sókna dómkirkjuprestakallsins ásamt fleiri smærri gjöfum (25 - 50.000 kr) en sú er náttúra smárra gjafa á okkar mælikvarða að vera stórar á þeirra mælikvarða. Vopnafjarðarkirkja hefur sent söfnuðunum í Kaibibich góðar kveðjur og gjafir. Grafarvogs og Vídalínskirkja hafa sömuleiðis sýnt myndarskap en báðar styðja þær minnihlutakirkjur í biskupsdæminu í Pókot. Aðrar kirkju hafa sent og þegið góðar kveðjur.

Ekki þarf að hafa mörg orð um þakklæti Afríkumanna í þessu sambandi þótt þeir vildu það gjarnan. Það að vera í bænum okkar er þeim mikils virði og ekki bregðast þau þar í fyrirbæninni okkar vegna. Þau geta kennt okkur margt með því einu að leyfa okkur að hugsa til sín og aðstæðna sinna. Þau eru flest svo átakanlega fátæk að við hljótum að endurmeta við nánari umhugsun okkar eigið mat á stöðu okkar sjálfra og verða þakklátari. Við megum einnig gleðjast okkar vegna en ekki gleyma þeim.
Safnaðatengsl byrja best á bæn, svo fylgir fleira og getur orðið svo stórt, rétt eins og mikill meiður vex af einu fræi.

 


Hafa samband
Senda inn bænarefni