Verkefni
Aðalvalmynd
Dagskrá
06.02.2012 20:00 -
21:00
Fundur í Kristniboðsfélagi karla
07.02.2012 19:30 -
21:30
Sakkeus - kvikmyndasýning
08.02.2012 20:00 -
21:00
SÍK samkoma
09.02.2012 16:00 -
18:00
Fundur í Kristniboðsfélagi kvenna
15.02.2012 20:00 -
21:00
SÍK samkoma
| Safnaðatengsl við Afríkukirkjur |
|
|
|
Verkefni um safnaðatengsl þjóðkirkjusafnaða við kirkjur í Afríku er byggt á starfi Kristniboðs- og hjálparstarfsnefndar Þjóðkirkjunnar sem hafið var á árinu 2008 að tilhlutan Karls Sigurbjörnssonar biskups. Það beinist að söfnuðum í lúthersku kirkjunum í Eþíópíu, Keníu og Malawi.Tengslin eru bein og milliliðalaus og án fyrirframgerðra skilyrða og byggjast á ráðgjöf og umsögn stuðningsaðila sem eru Kristniboðssambandið hér á landi og biskupsstofurnar í Afríkukirkjunum. Þau felast í bréfaskiptum, miðlun frétta, mynda og upplýsinga sem og mögulegum heimsóknum og aðstoð. Í hverjum söfnuði taka nokkrir aðilar að sér að annast tengslin og bréfaskriftirnar, samráð og miðlun fregna af tengslasöfnuðinum heima hjá sér. Markmiðið er að byggja upp og miðla þekkingu á lífi og högum safnaðanna til hver annars og bera vinasöfnuðinn á bænarörmum. Þetta kynni síðan að leiða til verkefna sem t. d. miðuðu að rekstri heimasíðu, kynningu í guðþjónustum eða samkomum, fjáröflun eða heimsóknum. Sr. Jakob Hjálmarsson vinnur að verkefninu sem sjálfboðaliði fyrir Kristniboðssambandið og Þjóðkirkjuna. Hann starfar í Afríku frá janúar til mars á næstu árum, ef Guð lofar, og aflar upplýsinga og rekur þau erindi sem tengslasöfnuðir vilja fela honum. Atburðarás tengslamyndunar gæti litið svona út:
Ábatinn af þessu starfi er aukin þekking og meðvitund um stöðu fólks í þróunarríkjunum, um fjölbreytni kristilegs trúarlífs og gleði af því að gera öðrum gott. Í tengslaverkefninu eru fólgin sérstök verkefni barna- og unglingastarfs, öldrunarstarfs, fræðslustarfs, kóra og þemaguðsþjónusta. Þeir söfnuðir sem taka þátt verða fyrirmynd annarra í því að samþætta kristniboðshugsjónina öllu starfi safnaðarins. |
Safnaðatengsl við Afríkukirkjur


Verkefni um safnaðatengsl þjóðkirkjusafnaða við kirkjur í Afríku er byggt á starfi Kristniboðs- og hjálparstarfsnefndar Þjóðkirkjunnar sem hafið var á árinu 2008 að tilhlutan Karls Sigurbjörnssonar biskups. Það beinist að söfnuðum í lúthersku kirkjunum í Eþíópíu, Keníu og Malawi.