Kristniboðssambandið


Hefur Guð misst allt úr böndunum? PDF Prenta Senda

Sumum virðist sem vonskan í heiminum bendi til og sé jafnvel sönnun þess að Guð hafi brugðist. Hér er grátur og gnístran tanna og víða er hver höndin er uppi á móti annarri. Menn berast jafnvel á banaspjót. Biblían kennir að Guð hafi sett mennina til að vera ráðsmenn hans á jörðinni. Þeir eiga að gera honum reikningsskil, ekki hann þeim. Mennirnir hafa frjálsan vilja að vissu marki. Þeim er ætlað að þóknast Guði. Hann neyðir þá ekki til þjónustu við sig – en þeir verða eftir sem áður að gera upp við hann að lokum. Skyldu það ekki vera þeir sem hafa brugðist, ekki skaparinn? Guð hefur birt okkur hvernig við eigum að koma fram hver við annan svo að gott sé að búa á þessari jörð. Þú kannast við boðorðin tíu. Þar er kjarninn. Boðorðin má kalla umgengnisreglur okkar. Hlýðir þú þeim út í æsar, þú og aðrir menn? Hefur þú alltaf sagt satt? Heiðrar þú föður þinn og móður eins og þeim ber? Ert þú alveg hreinn í hugsun og athöfn gagnvart hinu kyninu? Elskar þú náungann eins og sjálfan þig? Auðvitað svarar þú neitandi. En er þá nokkur furða þótt árekstrar og stríð séu daglegt brauð í mannheimi? Er sanngjarnt að gera löggjafann ábyrgan vegna lögbrota þegnanna? Er það lögreglunni að kenna að menn brjótast inn og stela, ráðast á friðsama vegfarendur o.s.frv.? Við erum öll sek – ekki Guð. Það sæmir ekki að við ákærum Guð. Og ein spurning enn: Gerir þú þér far um að kynna þér sem best hvað Guð hefur um líf okkar og breytni að segja? Það varðar meiru en allt annað að við gefum gaum að orði Guðs. Er opin Biblía á heimili þínu? Ferð þú reglulega þangað sem fagnaðarerindið er boðað? Athugaðu að þrjú fyrstu boðorðin snúast um þig og – Guð. Hin boðorðin sjö snerta tengslin við aðra menn. Og þarna þarf að vera rétt röð. Fyrst er að sækjast eftir réttu sambandi við Guð, trúarsamfélagi við hann, síðan og jafnframt að spyrja hvernig hann vill að við lifum og breytum. Hjá Guði er þekkingin, og krafturinn til að lifa að hans vilja eftir því sem syndugum manni er mögulegt. Við erum öll brotamenn fyrir Guði. Við höfum engan rétt til á ásaka hann. En vegna Jesú Krists megum við biðja um náð hans og um kraft til að lifa að hans vilja. Vilt þú „gefa Guði tækifæri“? Hann stendur við dyr hjarta þíns og knýr á.

Benedikt Arnkelsson 

 

Dagskrá

23.05.2012 20:00 - 21:00
Kristniboðssamkoma

24.05.2012 16:00 - 18:00
Fundur í Kristniboðsfélagi kvenna

30.05.2012 20:00 - 21:00
Kristniboðssamkoma

31.05.2012 20:00 - 22:00
Föndurkvöld

06.06.2012 20:00 - 21:00
Kristniboðssamkoma



Hafa samband
Senda inn bænarefni