| Eru leiðirnar margar til Guðs? |
|
|
|
|
Trúarbrögðin eru margvísleg í heiminum og áhangendur sumra þeirra skipta milljónum. Því fer víðsfjarri að kristindómurinn sé einráður. Samt segja kristnir menn í fullri alvöru að sáluhjálp eða frelsun veitist eingöngu fyrir trú á Jesú Krist. Taka þeir ekki nokkuð djúpt í árinni? Látum vera að til sé aðeins einn guð en er ekki líklegt að trúarbrögðin séu mismunandi leiðir sem allar liggi til hans, hvað sem þær kallast? Hafa kristnir menn einkaleyfi á sáluhjálpinni? Þessu má svara á marga vegu. Kannski mætti t.d. segja sem svo: Hin margvíslegu trúarbrögð, sem víkja fram hjá Biblíunni, eru eiginlega öll leiðbeining um hvernig við eigum að geta náð til guðdómsins. Við þurfum að leggja eitthvað á okkur til þess að það takist, t.d. sökkva okkur niður í hugleiðslu, afneita lífsgæðunum og iðka meinlæti og jafnvel sjálfspyndingar, halda margvísleg fyrirmæli og reglur t.d. varðandi fórnfæringar og bænahald o.s.frv. Sá sem stendur sig vel getur gert sér vonir um eða orðið viss um að guðdómurinn verði honum miskunnsamur og veiti honum sælu eða algleymi. Með þessu reyna menn í eigin mætti að afla sér himnavistar. Þeir hyggjast fara leiðir sem þeir hafa sjálfir lagt. Í kristindómnum er boðað hið gagnstæða. Guð hefur talað, Guð hefur hefur opinberað sjálfan sig, Guð hefur lagt veginn frá sér til okkar og boðið okkur að fara hann. Hann gefur sig til kynna í Biblíunni og hann kom í Jesú Kristi Við hljótum að sjá t.d. ef við lesum orð Jesú í guðspjalli Jóhannesar hversu hann leggur áherslu á að hann sé sendur af föðurnum á himnum. Þekkt er „litla Biblían“, Jóh. 3,16: „Svo elskaði Guð heiminn að hann gaf son einn eingetinn til þess að hver sem á hann trúir glatist ekki heldur hafi eilíft líf.“ Ýmis orð Jesú sýna að honum verður ekki skipað á bekk með neinum öðrum. „Ég er vegurinn, sannleikurinn og lífið. Enginn kemur til föðurins nema fyrir mig“ (Jóh. 14,6). Finna má fleiri ritningarstaði þar sem Jesús hefur mál sitt með því að segja. „Ég er …“ Hann heldur því fram að hann sé einstæður. Eitt er það sem vegur þyngst. Jesús reis upp frá dauðum. Með því, segir Biblían, var auglýst að hann væri sonur Guðs (Róm. 1,1-4). Þess vegna bauð Jesús lærisveinum sínum að fara út um allan heim og boða trúna á hann. Öll önnur trúarbrögð verða að víkja. Þau leiða menn ekki til Guðs. Allt snýst um Jesú, dauða hans og upprisu, hjálpræðisverk hans – og að við setjum traust hjartans á hann. Hjá honum veitist náð og fyrirgefning syndanna og lausn undan sektinni og tilgangsleysinu. Í fylgd með honum hefst lífið sjálft. Þess vegna segja vottar hans hiklaust: „Trú þú á Drottin Jesú og þú munt verða hólpinn“ (Post. 16,31). Benedikt Arnkelsson |
Aðalvalmynd
Dagskrá
23.05.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma
24.05.2012 16:00 -
18:00
Fundur í Kristniboðsfélagi kvenna
30.05.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma
31.05.2012 20:00 -
22:00
Föndurkvöld
06.06.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma



