| Hver eru einkenni sannrar kirkju? |
|
|
|
|
Menn leggja misjafna merkingu í orðið kirkja, hugsa oft um stofnun eða presta eða hús. En sönn kirkja er samfélag manna sem vita ekkert annað sér til sáluhjálpar en Jesú Krist, krossfestan og upprisinn frelsara. Sönn kirkja kappkostar að halda sig við ritninguna og hana eina. Ritningin er orð Guðs, og sá sem flytur orð hennar talar fyrir hönd hinnar sönnu kirkju. Hinn sem prédikar andstætt orði Guðs er ekki talsmaður sannrar kirkju og gildir einu hver staða hans er í söfnuðinum. Í Ágsborgarjátningunni, einu af játningaritum lútherskrar kirkju, segir svo: „Kirkjan er söfnuður heilagra þar sem fagnaðarerindið er kennt hreint og sakramentunum er veitt rétt þjónusta" (7. gr.). Kjarninn í kenningu kirkjunnar er um synd og náð, um mannlegan breyskleika og sekt fyrir Guði og um miskunn Guðs og fyrirgefningu og fyrirheit um eilífa sáluhjálp vegna Jesú Krists, þeim sem trúa á nafn hans. Biblían er stundum mild og stundum ströng í boðun sinni. „Gjörið iðrun og trúið fagnaðarerindinu" (Markús 1,15). „Þann sem kemur til mín mun ég alls eigi brott reka" (Jóhannes 6,37). „Vitið þér ekki að ranglátir munu ekki Guðs ríki erfa? Villist ekki! Hvorki munu saurlífismenn né skurðgoðadýrkendur, hórkarlar né kynvillingar, þjófar né ásælnir, drykkjumenn, lastmálir né ræningjar Guðs ríki erfa. Og þetta voruð þér, sumir yðar. En þér létuð laugast, þér eruð helgaðir, þér eruð réttlættir fyrir nafn Drottins Jesú Krists og fyrir anda vors Guðs" (1. Korintubréf 6,9-11). Biblían er afdráttarlaus. Hún kennir um alvöru þess að lifa í syndum. En fyrirgefning stendur öllum þeim til boða sem iðrast og trúa á Jesú. Jesús hreinsar hjartað og gefur nýtt líf. Kirkja sem boðar afturhvarf og trú á frelsarann Jesú Krist, sem fórnaði sér fyrir syndir mannanna, er sönn kirkja. Siðbótarmaðurinn Marteinn Lúther talaði um að til væri tvenns konar kirkja í heiminum. Önnur er fölsk, hin sönn. Þeir sem flytja annarlegan boðskap í nafni kirkjunnar eru sem úlfar í sauðagæru. Í sannri kirkju er þetta meginregla: „Sá sem talar flytji Guðs orð" (1. Pétursbréf 4,11). Ef hún leitast við að fylgja þessu er hún sönn hvort sem þeir eru fáir eða margir sem heyra henni til. Engin mannleg samtök eru fullkomin, ekki heldur nein kirkja eða söfnuður eða kristilegur félagsskapur. Enginn tryggir sig með því einu að ganga í söfnuð eða félag. Hver og einn verður að prófa sjálfan sig: Hef ég snúið frá syndum mínum og leitað fyrirgefningar hjá Jesú Kristi? Sá sem fylgir Jesú á að vera í trúarsamfélagi þar sem fagnaðarerindið er boðað en sneiða hjá þeim sem flytja rangan boðskap. Benedikt Arnkelsson |
Aðalvalmynd
Dagskrá
23.05.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma
24.05.2012 16:00 -
18:00
Fundur í Kristniboðsfélagi kvenna
30.05.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma
31.05.2012 20:00 -
22:00
Föndurkvöld
06.06.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma



