| Var Jesús nokkurn tíma til? |
|
|
|
|
Góðir sagnfræðingar taka ekki allt gott og gilt. Þeir vega og meta heimildir. Ég held að þeir myndu aldrei efast um að Jesús hefði verið til. Í kringum árið 1900 er getið um einhvern þýskan prófessor sem hélt þessu á lofti. Óvinir kristindómsins urðu kátir og létu þetta ekki liggja í þagnargildi. En þessari fullyrðingu hafa menn líkt við ýmsar fáránlegar getgátur, t.d. á vísindasviðinu, sem hafa verið kveðnar niður. Við höfum áður minnst á hversu líklegt sé að óhætt sé að treysta guðspjallamönnunum. En það má líka benda á heimildir um Jesú utan Biblíunnar. Tacitus hét rómverskur sagnaritari sem þótti nákvæmur í frásögnum sínum. Þegar Neró var keisari í Rómaborg varð mikill bruni í borginni sem frægt er orðið. Þá ritaði Tacitus (á mótum fyrstu og annarrar aldar): - Neró benti á hverjir væru sekir og dæmdi þá í hinar hörðustu refsingar. Þetta var kristna fólkið. Nafnið er dregið af orðinu Kristur en Pontíus Pílatus landshöfðingi tók hann af lífi á dögum Tíberíusar keisara. - Þetta segir Tacitus. Þá er einnig greinilega vísað til Jesú í fornum áletrunum frá Austurlöndum nær. Stundum eru menn miklu tortryggnari um tilvist Jesú en annarra merkra manna fyrr á öldum. Flestir kannast við nafnið Sókrates. Hann var heimspekingur og var uppi um það bil 500 árum fyrir Krist. Kannski gera ekki allir sér ljóst að ekki er til eitt orð sem hann hefur sjálfur skrifað. Hann kenndi eingöngu munnlega og þess vegna er ekki til neitt á bók frá hans hendi. Það sem við vitum um ræður Sókratesar er skrifað í bókum Platons sem var einn lærisveina hans. Sá hefur líka frætt okkur um það að Sókrates hafi verið neyddur til að fyrirfara sér með því að taka inn eitur. Og enginn efast um að Sókates hafi verið uppi á þessum tíma. Áhrif trúarinnar á Jesú hafa verið svo mikil að fráleitt er að halda því fram að það sé tilbúningur að hann hafi nokkurn tíma verið til. Kristin gildi, sem hafa verið eins og uppistaða í menningu Vesturlanda, eru ekki reist á ósannindum. Tímatal okkar er ekki miðar við helgisögn. Við minnumst ekki þúsund ára kristnitöku á landinu okkar með því að rifja upp atburði sem áttu rætur í helgisögn. Láttu efasemdir um tilvist Jesú ekki aftra þér frá því að snúa þér að Biblíunni og lesa um hann. Kynntu þér frásögurnar og önnur orð Biblíunnar. Og gakktu lengra: Opnaðu hjarta þitt fyrir honum og bið hann að koma inn, veita þér sannfæringu, hreinsa og fyrirgefa. Þá ertu sannur við sjálfan þig enda sagði Jesús: "Hver sem er af sannleikanum heyrir mína rödd" (Jóhannes 18,37). Benedikt Arnkelsson |
Aðalvalmynd
Dagskrá
23.05.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma
24.05.2012 16:00 -
18:00
Fundur í Kristniboðsfélagi kvenna
30.05.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma
31.05.2012 20:00 -
22:00
Föndurkvöld
06.06.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma



