| Hvers vegna líta kristnir menn spíritismann hornauga? |
|
|
|
|
Væri ekki tilvalið að tefla fram sönnunum spíritismans um framhaldslíf? Er það ekki einmitt kenningin sem margir hnjóta um, að ekki sé öllu lokið við dauðann heldur að við lifum áfram? Spíritistar segjast hafa náð sambandi við látna menn, jafnvel fornmenn. Kenningar og játningar kristinna manna hafa ekki sannfært alla. Eru ekki sannanir spíritista í samræmi við við það sem nútímamaðurinn krefst - byggðar á tilraunum, vísindasannanir? Biblían sjálf, grundvöllur kristindómsins, hafnar spíritismanum með öllu. Hvar sem minnst er á andatrúna er henni vísað á bug. "Eigi skal nokkur finnast hjá þér, ...særingamaður eða spásagnamaður eða sá er leiti frétta af framliðnum. Því að hver sá er slíkt gjörir er Drottni andstyggilegur" (5. Mósebók 18,9-13). Ísraelsmenn komu frá Egyptalandi til fyrirheitna landsins. Þeir sem voru fyrir í landinu hlýddu á spásagnamenn, galdramenn og miðla en Guð bannaði þjóð sinni allt slíkt. Andatrúin var talin til svívirðinga heiðnu þjóðanna. Hún samræmdist engan veginn trúnni á Guð. Þeim sem vildu leita til hinna dauðu vegna hinna lifandi átti að svara: "Til kenningarinnar og vitnisburðarins!" (Jesaja 8,19-20). Jesús sagði söguna um ríka manninn og fátæklinginn Lasarus. Þegar þeir dóu var fátæki maðurinn borinn af englum í faðm Abrahams en hinn lenti í kvölum. Ríki maðurinn átti bræður og vildi að Lasarus yrði sendur til að vara þá við þessum kvalastað. En það var ekki leyft. Hvert var svarið sem ríki maðurinn fékk? "Þeir hafa Móse og spámennina, hlýði þeir þeim" Ef þeir hlýða ekki Móse og spámönnunum láta þeir ekki heldur sannfærast þótt einhver rísi upp frá dauðum (Lúkas 17,19-31). Það var óleyfilegt að einhver frá hinum dauðu færi með skilaboð. Bræðurnir höfðu boðskapinn frá Guði, Móse og spámennina. Í heilagri ritningu hefur Guð birt það sem við þurfum að vita til að þekkja Guð og ganga á hans vegum. Þar er "kenningin og vitnisburðurinn". Mörg dæmi eru um það að spíritistar láta alls ekki sannfærast um grundvallaratriði kristindómsins þó að þeir telji að líf sé að loknu þessu lífi. Já, þeir hafna þeim, vinna gegn þeim. Sumt af því sem á að koma "að handan" er beinlínis andstætt kristinni trú. Einn miðill sagði að Hallgrímur Pétursson hefði komist að raun um eftir dauðann að kenningin um endurlausn Jesú væri eitruð ósannindi. Þó kallar Biblían kristindóminn "orð krossins". Miðlar hafa orðið sannir að svikum, einnig hér á landi. Einu sinni týndist bátur. Áhöfnin fór að koma fram á miðilsfundi. En svo fannst báturinn, hann hafði ekki farist. Hver laug? Miðillinn? Andarnir? Eða voru þetta aðeins hugrenningar fólksins sem orkuðu á miðilinn? Ekkja ein kom til Reykjavíkur til að fara á miðilsfund. Hún hugðist hressa upp á íbúðina sína og ætlaði að ráðgast við látinn mann sinn, sagði hún. Er þetta eðlilegt mannlíf, að gera sig háðan þeim sem eru farnir héðan? Nei, því fer víðsfjarri. Sá sem hyggst leita til framliðinna fer inn í myrkur og veit ekki hvert hann stefnir. Hann brýtur gegn Drottni. Hann gerir sig háðan öflum sem Drottinn hefur fordæmt harðlega. Jesús sagði þegar djöfullinn freistaði hans: "Drottin Guð þinn skaltu tilbiðja og þjóna honum einum" (Matteus 4,10). Þess vegna snúa kristnir menn baki við spíritisma og hvetja aðra til að festa allt traust á frelsaranum. Hann sagði: "Ég er vegurinn, sannleikurinn og lífið. Enginn kemur til föðurins nema fyrir mig" (Jóhannes 14,6). Benedikt Arnkelsson |
Aðalvalmynd
Dagskrá
23.05.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma
24.05.2012 16:00 -
18:00
Fundur í Kristniboðsfélagi kvenna
30.05.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma
31.05.2012 20:00 -
22:00
Föndurkvöld
06.06.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma



