Kristniboðssambandið


Hjálpar Guð þeim sem hjálpar sér sjálfur? PDF Prenta Senda
Já, því er stundum haldið fram. En ekki er alltaf ljóst hvað menn eiga við. Sumir hugsa: Ég nýt ekki hjálpar Guðs nema ég geti hjálpað mér sjálfur. En er ekki hætt við því að sá sem ætlar að hjálpa sér sjálfur kæri sig ekki um hjálp Guðs, Guð verði óþarfur? Eða á hinn bóginn, að sá sem er hjálparvana geti ekki búist við neinni liðsemd af hálfu Guðs af því að viðkomandi er svo aumur?

Þetta stenst ekki. Enginn maður gerir Guð óþarfan. Og hinn úrræðalausi má snúa sér til Guðs og vænta hjálpar hans.

Aðrir vildu segja - og það réttilega: Þegar ég lendi í vanda á ég ekki að leggja hendur í skaut og biðja: Góði Guð, nú verður þú að leysa málin." Ekki er rangt að leita til Guðs. En öllum er gefið vit og vilji sem við eigum að nota. Guð er ekki þjónn sem hlýðir öllum hugdettum okkar.

Sannleikurinn er sá að við eigum bæði að "gera eitthvað sjálf" og snúa okkur til Guðs. Lúther sagði einu sinni: "Bið eins og allt starf þitt sé til einskis. Starfa eins og bænir þínar séu til einskis."

Guð gerir ekki það eitt sem við fáum ekki áorkað. Það er hann sem gefur okkur kraft til að lifa. Annars værum við lémagna. Það sem við erum, það sem við höfum og eigum, það er frá Guði komið hvort sem við viðurkennum það eða ekki. Hann er orkulindin í lífi okkar.

En eitt er það sem okkur er um megn. Það er að hreinsa okkur af syndinni. Samviskan og reynslan kennir okkur að við erum eigingjörn og breytni okkar ekki eins og vera ætti, síst við náungann. Og jafnvel sá sem aldrei hefur heyrt neitt úr Biblíunni hefur grun um að hann eigi eftir að standa skil á lífi sínu. Í augum margra er þetta þyngsta byrðin sem á þeim hvílir. Það er rétt mat.

Jesús Kristur kom til að hjálpa okkur vegna þeirrar byrðar. Hann sagði sjálfur að hann væri ekki kominn til að láta þjóna sér heldur til að þjóna og leggja líf sitt í sölurnar fyrir aðra. Biblían segir að hann hafi tekið syndasekt okkar á sig þegar hann dó á krossinum á Golgata. Hann "bar synd heimsins". Hann hét lærisveinum sínum eilífu lífi, sáluhjálp.

Í þessu máli getur þú ekki hjálpað þér sjálfur. Þú vinnur aldrei fyrir sáluhjálpinni. Það gerir Jesús einn. "Það er fullkomið," sagði hann á krossinum. Þú veitir þessu viðtöku í trú.

Jú, þú getur hjálpað þér sjálfur í þessu máli og átt að gera það með því að opna Biblíuna og lesa um Jesúm, hugleiða orðið og biðja hann að koma inn í hjarta þitt, og með því að hlusta á skýran boðskap um hann og þessa hjálp hans. Þú hjálpar þér sjálfum með því að standa ekki vísvitandi gegn Guði heldur opna hug þinn fyrir honum. Þá gefur hann þér trúna og samfélag við sig. Þú lærir að treysta ekki eingöngu viti og vilja á lífsgöngunni heldur leggur alla hluti í hans hendur og biður hann að leiða þig og móta þig.

Jesús styður ekki aðeins hinn sterka. Hann styður hinn veika! Dauði hans á krossinum sannar það.

Og í trúnni á kærleika og fyrirgefningu Jesú veitist undursamlegur, nýr kraftur til að lifa lífinu í samfélagi við aðra menn. Postulinn þekkti þennan kraft og sagði: "Kærleikur Krists knýr oss." Þetta er sterkasta aflið í mannheimi.

Benedikt Arnkelsson
 

Dagskrá

23.05.2012 20:00 - 21:00
Kristniboðssamkoma

24.05.2012 16:00 - 18:00
Fundur í Kristniboðsfélagi kvenna

30.05.2012 20:00 - 21:00
Kristniboðssamkoma

31.05.2012 20:00 - 22:00
Föndurkvöld

06.06.2012 20:00 - 21:00
Kristniboðssamkoma



Hafa samband
Senda inn bænarefni