| Hver hefur tíma til að fara í guðshús? |
|
|
|
|
Kristnir trúmenn leggja mikla áherslu á að koma saman í kirkjum eða samkomuhúsum, helst á sunnudögum. Hvers vegna að bæta slíkum byrðum á herðar hins önnum kafna nútímamanns? Hann þarfnast þess að hvíla lúin bein á sunnudögum, jafnvel fram að hádegissteikinni, og nota síðan daginn eins og honum þykir best, t.d. fara í bílferð eða sjá knattspyrnukappleik … Satt er það, við þurfum svefn, hvíld, loft, hreyfingu og góða fæðu. En sálin þarf líka næringu sem fæst ekki með því að lúra fram eftir, setjast við nægtaborð eða halda á vit náttúrunnar. Jesús sagði: "Ég er brauð lífsins." Hann er hin eiginlega "lífsorka" sem enginn má fara á mis við. Margir kvarta yfir því að fólki gefist ekki tími til að sinna hvert öðru. Kannski finnur þú sárt til þess. Vittu þá að Jesús hefur tíma, einnig handa þér, og ekki aðeins til að sýna sig heldur sinna þér. Hann er reiðubúinn að gefa þér af tíma sínum af því að þú ert honum kær. Ef þú gefur honum tíma til að vera með þér og hann fær að komast að í lífi þínu verður hann þér sú orkulind sem þú þarfnast mest - og metur mest þegar þú ferð að drekka af henni. Hann sagði eitt sinn við konu sem hann átti tal við: „Ef þú þekktir gjöf Guðs og vissir hver sá er sem segir við þig: "Gef mér að drekka, þá mundir þú biðja hann og hann gæfi þér lifandi vatn" (Jóh. 4,10). Það er Guð sem hefur gefið þér tímann, til að vinna, nærast, hvílast - og til að styrkja sál þína, endurnýja hana, tengja þig við upphaf þitt, við Guð. En þú setur Guð neðst á tímatöfluna. Þá er engin furða þó að tíminn, sem þú ætlaðir að ráða yfir, drottni yfir þér. Hann verður harðstjóri. Það er illt að vera þræll hans. Guð gefur þér tækifæri á hverjum morgni - eða á öðrum tíma dagsins sem kynni að henta þér betur - til að tala við hann í kyrrð og ró, til að gefa gaum að því sem hann vill segja við þig í orði sínu, Biblíunni, til að fá styrk til daglegs lífs. Og þetta tækifæri veitir hann þér sérstaklega á sunnudeginum þar sem kristnir menn hittast, syngja honum lof, biðja hann og ákalla og hlýða á fagnaðarerindið um frelsarann. Sá sem gefur sér tíma til að fara í guðshús gefur Guði tíma í lífi sínu. Sá sem gefur sér tíma til að fara í guðshús gefur sjálfum sér tíma - og meðbræðrum sínum. Benedikt Arnkelsson |
Aðalvalmynd
Dagskrá
23.05.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma
24.05.2012 16:00 -
18:00
Fundur í Kristniboðsfélagi kvenna
30.05.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma
31.05.2012 20:00 -
22:00
Föndurkvöld
06.06.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma



