| Er trúin ekki einkamál? |
|
|
|
|
Allar þessar spurningar, þessar sífelldu skoðanakannanirnar, öll opinskáu viðtölin við þekkta fólkið - er einkalíf úr sögunni, eða hvað? Er ekki kominn tími til að hætta þessari hnýsni og venja sig aftur á að draga gluggatjöldin fyrir stöku sinnum? Máttur auglýsinganna er skyldur þessu. Þeir vilja drottna yfir okkur og sveigja okkur og beygja svo að við gerum okkur jákvæðar hugmyndir um vörur þeirra og síðan draga þeir okkur á asnaeyrunum … Það er sannleikskorn í þessum athugasemdum þínum. Okkur er ætlað að standa á eigin fótum og láta ekki aðra ráskast með okkur. Hitt má ekki gleymast að við erum ekki hvert um sig á eyðieyju líkt og Róbinson Krúsó. Við erum í samfélagi manna, í lifandi, órjúfanlegu sambandi við samferðafólk okkar. Líf okkar er því ekki einkamál. Það blasir við augum vina okkar og fjölskyldu. Þessu fylgja margvíslegar skyldur sem við getum ekki hlaupist undan. Daglegt líf okkar, hegðun, skoðanir - þetta snertir fleiri en okkur. Jú, trúin er einkamál að því leyti að enginn trúir fyrir mig og ég ekki fyrir aðra. En trú mín - eða trúleysi - ræður för minni og eilífu hlutskipti og hún hefur líka áhrif á meðbræður mína hvort sem mér líkar betur eða verr. Mest er um vert að vita að líf okkar blasir við augum hans sem hefur skapað himin og jörð. Hann er nálægur okkur þótt við sjáum hann ekki. Og þessi Guð er yfir það hafinn að við gerum hann nokkurn tíma að "einkamáli". Hann skapaði okkur, hann á okkur, hann setti okkur lífsreglur og hann krefur okkur reikningsskapar fyrir lífið sem hann gaf okkur. Fram hjá því komumst við ekki. Dagurinn sá rennur upp þó að Biblían boði ekki að það verði árið 2000. Ég er ábyrgur fyrir Guði. Er ekki hyggilegt að koma fram í ljósið og auðmýkja sig fyrir honum? Hvar? Á Golgata þar sem Jesús sonur Guðs bar synd heimsins, þína og mína og allra annrra. Drottinn réttir þeim, sem krýpur þar, hönd sína, gerir hann að barni sínu og reisir hann upp til nýrrar lífsgöngu, í trú á hann. Enda segir Biblían: "Fel Drottni vegu þína, treyst honum, hann mun vel fyrir sjá" (Sálm. 37,5). Benedikt Arnkelsson |
Aðalvalmynd
Dagskrá
23.05.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma
24.05.2012 16:00 -
18:00
Fundur í Kristniboðsfélagi kvenna
30.05.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma
31.05.2012 20:00 -
22:00
Föndurkvöld
06.06.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma



