| Nægir ekki að skynja Guð í náttúrunni? |
|
|
|
|
Sumum finnst þeir vera í návist Guðs þegar þeir skoða blóm og tré, virða fyrir sér fjöll og himin og margvíslega fegurð náttúrunnar. Það er eðlilegt. Skaparinn er stórkostlegur, sköpun hans furðuverk. Skáldið Schiller yrkir um að kærleiksríkur faðir hljóti að búa að baki stjörnuhvelfingunni. Kærleiksríkur? Er slíkan föður alltaf að finna í náttúrunni? Hvassviðri eyðileggur fagran blómagarð. Mörg dýr drepa önnur dýr af mikilli grimmd. Snjóskriður falla og hrífa tugi manna með sér. Eldgos spúa ösku … Náttúruöflin eru ekki lömb að leika sér við. Það er gott og blessað að finna ljúfa og jafnvel trúarlega kennd úti í náttúrunni. En er víst að þessar tilfinningar séu meira en viðbrögð opins huga við fegurð og tign? Og annað: Guð í náttúrunni, nægir hann nokkrum? Skiptir hann nokkru máli í daglegu lífi mínu? Talar hann við okkur persónulega? Sefar hann sorg? Huggar hann þegar ég missi ástvin? Friðar hann órólega samvisku? Gefur hann von í dauðanum? Guð í náttúrunni nægir ekki. Og samt lætur skaparinn sér annt um þig. Einhver hefur sagt: „Þegar þú heyrir um Jesú Krist ert þú ekki lengur að horfa á vettvanginn þar sem Guð er að verki heldur ertu sjálfur vettvangurinn sem Guð starfar á." Við getum oftast farið allra okkar ferða í náttúrinni og enginn stöðvar okkur eða talar til okkar. En þegar við mætum Jesú hljótum við að nema staðar. Jesús kom frá himnum til að leggja veg til Guðs og leiða okkur veginn. Já, hann er sjálfur vegurinn. Og hann spyr ekki um reynslu okkar úti í náttúrunni - hún getur verið ærið misjöfn - heldur: Viltu opna hjarta þitt fyrir mér og leyfa mér að hreinsa það og setjast þar að völdum? Þú finnur ekki raunverulegt samfélag við Guð úti í náttúrunni. Þú öðlast það þegar þú tekur við Jesú í hjarta þitt. Þá byrjar þú nýtt líf - með Guði. Benedikt Arnkelsson |
Aðalvalmynd
Dagskrá
23.05.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma
24.05.2012 16:00 -
18:00
Fundur í Kristniboðsfélagi kvenna
30.05.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma
31.05.2012 20:00 -
22:00
Föndurkvöld
06.06.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma



