Kristniboðssambandið


Eru mismunandi kenningar um Guð í Biblíunni? PDF Prenta Senda
Þegar menn byrja að lesa Biblíuna finnst sumum vera mótsagnir í lýsingum hennar á Guði og viðbrögðum hans gagnvart mönnunum. Enginn má ætla að þetta séu mótsagnir.

Hugsum okkur tvo bræður. Þeir hafa nýlega misst föður sinn og gera sér nú ljóst hversu hann lét sér umhugað um þá alla tíð. Annar talar um festuna og strangleikann í fari hans en hinum verður tíðrætt um gæsku hans og mildi. Er þetta mótsögn? Nei, synirnir höfðu áttað sig á því að festa og strangleiki, gæska og mildi voru í raun mismunandi þættir í kærleika föðurins. Allt hefur sinn tíma, er ekki svo?

Biblían varð ekki þannig til að einn og sami maðurinn hafi skráð allar 66 bækur hennar í sama stíl og með sams konar orðalagi. Bækurnar voru samdar á mörgum öldum. Hver og einn ritari vissi að Guð var himneskur faðir hans. Hver bjó við sínar aðstæður. Hver sagði frá sinni reynslu eða annarra af Guði. Þeir vitnuðu um Guð og verk hans. Guð kom við sögu í lífi manna. Fólkið, sem frá er sagt, gat ekki talað á annan veg um Guð en það gerði, þ.e. á máli sem virðist í fljótu bragði mótsagnakennt - rétt eins og ummæli sonanna tveggja. En skýringin er auðvitað sú að reynsla þeirra var misjöfn. Þeir fundu að Guð skipar fyrir, dæmir og refsar samkvæmt boðum sínum og fyrirmælum - og hann er jafnframt góður, miskunnsamur og fús að fyrirgefa þeim sem iðrast.

Og eins er þetta um "mótsögnina miklu" í Biblíunni: Guð vill eiga þig allan og óskiptan, kærleika þinn, fullkominn hreinleika, algjöra einlægni og algjöra óeigingirni. Hann krefst þess að þú haldir boðorð hans og á þeim forsendum mun hann dæma þig. En - samt réttir hann þér höndina enda þótt þú getir ekki fullnægt kröfum hans. Jesús dó fyrir syndir þínar og veitir þér náð og sátt ef þú kemur til hans. Ef þú trúir vottum Guðs og þar með honum sjálfum - þá kemstu að raun um, eins og vottarnir, að mótsagnirnar gufa upp. Guð er stórkostlegur.

Benedikt Arnkelsson
 

Dagskrá

23.05.2012 20:00 - 21:00
Kristniboðssamkoma

24.05.2012 16:00 - 18:00
Fundur í Kristniboðsfélagi kvenna

30.05.2012 20:00 - 21:00
Kristniboðssamkoma

31.05.2012 20:00 - 22:00
Föndurkvöld

06.06.2012 20:00 - 21:00
Kristniboðssamkoma



Hafa samband
Senda inn bænarefni