Kristniboðssambandið


Eru ekki aðeins sumir trúhneigðir? PDF Prenta Senda
Sumir taka þannig til orða að enginn sé í eðli sínu trúhneigður - því að þegar Guð vilji komast í kallfæri við okkur viljum við helst taka til fótanna. Það er gömul saga að menn reyna að fela sig eins og Adam í Paradís eða koma sér upp varnarvirkjum þegar Guð nálgast þá. Þeir segja: - Það er öðrum að kenna. Ég er með góða samvisku. Þjóðfélagið er svo spillt. Ég er ekki verri en aðrir. Ég er meira að segja vandaður maður. Og: - Ég er víst ekki með nein trúargen. Ég er einfaldlega ekki trúhneigður.

En Guð sér hvað leynist á bak við þessa varnarmúra. Þeir eru yfirskin. Guð leitar okkar og við fáum ekki dulist fyrir honum. Við gætum verið á hlaupum undan honum alla ævi en hann nær okkur samt. Eða við erum eins og maður sem rær báti af kappi, vatnið skvettist en báturinn hreyfist ekki úr stað af því að hann er bundinn við bryggjuna.

Kristin trú er ekki háð eðli okkar eða ættgengi. Einhver hefur sagt að jafnfráleitt sé að tala um sérstaka trúarhæfileika og að tala um sérstaka hæfileika til að lifa. Fyrir Guði erum við ekki með eða án getu til að trúa, við erum aðeins menn. Ég er ég og þú ert þú. Guð leitar okkar beggja til að eiga samfélag við okkur hvort sem við teljum okkur trúhneigða eða ekki. Hann ákvað áður en hann skapaði okkur að við skyldum lúta honum í trú.

Ef til vill spyrðu, eins og flestir menn, um tilganginn með lífinu. Kannski mætti kalla það sönnun fyrir því að þú sért þrátt fyrir allt trúhneigður að eðli til úr því að þessi spurning vaknar með þér. Hneigðin ein stoðar þó lítt ef við leitum ekki svarsins hjá Guði. Margur maðurinn býr sjálfur til svörin. Sumir finna tilgang lífsins í gervitrú, eða þeir ástunda eitthvað sem kemur í stað trúar eða bælir trúarþörfina, t.d. kvikmyndahús, knattspyrnu, vinnuna, barnauppeldi, hugsjón o.s.frv.

Ekkert af þessu nægir fyrir Guði. Hvað er það sem nægir? Aðeins eitt: Jesús Kristur, trúin á Jesú Krist. Þegar við lesum um hann í Biblíunni áttum við okkur á því hversu fráleitt er að reyna að forðast hann. Faðirinn á himnum sendi hann til að vinna sáttargjörð og til að kalla á okkur til sín. Þegar við gefum gaum að kalli hans leiðir hann okkur til friðar við Guð, í trúnni á hann. Þá finnum við tilgang lífsins.

Benedikt Arnkelsson
 

Dagskrá

23.05.2012 20:00 - 21:00
Kristniboðssamkoma

24.05.2012 16:00 - 18:00
Fundur í Kristniboðsfélagi kvenna

30.05.2012 20:00 - 21:00
Kristniboðssamkoma

31.05.2012 20:00 - 22:00
Föndurkvöld

06.06.2012 20:00 - 21:00
Kristniboðssamkoma



Hafa samband
Senda inn bænarefni