Kristniboðssambandið


Þurfum við öll þessi boð og bönn? PDF Prenta Senda
Þetta er gamall draumur mannanna, að losna við allt sem bindur þá og heftir. En ákaflega er hann óraunsær. Veistu hvernig færi? Fyrr en varir létum við hvert um sig stjórnast löngunum okkar, þrám, girndum og græðgi og hættum að taka tillit til náungans. Og hann yrði eins og við. Allir berðust við alla. Afleiðingin yrði mannvíg, spilling, upplausn og hrun í lífi einstaklinga og þjóðfélags. Kynntu þér þjóðfélag þar sem menn virða engin lög nema sín eigin. Hefurðu lesið t.d. um hvernig ástandið varð í Tsétséníu eftir fall kommúnismans?

Já, þessi löngun stafar af því að við viljum vera laus við Guð og boðorð hans. En það er gagnslaust að treysta á „hið góða í manninum", að það haldi okkur í skefjum, eða að samviskan verði öruggur leiðarvísir og stórnandi.Við menn höfum villst af leið og erum reikulir í spori. Samviskan er óáreiðanleg ef hún miðar eingöngu við sjálfa sig. Reyndu að binda hund fastan við hálsbandið hans í stað þess að leiða hann með styrkri hendi.

Boðorð Guðs eru lífsnauðsynleg. Og Guð beinir þeim til okkar allra. Hann vill binda okkur við sig og vernda okkur þannig - fyrir okkur sjálfum. En við erum sífellt að slíta okkur laus og hlaupa í burtu frá honum. Við viljum vera frjáls, segjum við, við teljum okkur nógu þroskuð til þess. Og Guð þvingar okkur ekki. En hann vill leiða okkur fyrir sjónir að við getum ekki lifað án hans og fyrirmæla hans.

Hvers vegna vaknar kvíði um alla heimsbyggðina þegar eitthvert ríkið fer að gera tilraunir með kjarnorkusprengjur? Vegna þess að við treystum ekki mönnunum, þeir gætu fallið fyrir þeirri freistingu að nota sprengjuna. Hafa menn þá ekki nægan siðferðisstyrk? Nei, og þeir gleyma eða láta sér í léttu rúmi liggja að við eigum öll eftir að standa frammi fyrir dómstóli Guðs.

Heldur þú að við fáum vægan dóm enda þótt við virðum boð Guðs og bönn að vettugi?

Benedikt Arnkelsson
 

Dagskrá

23.05.2012 20:00 - 21:00
Kristniboðssamkoma

24.05.2012 16:00 - 18:00
Fundur í Kristniboðsfélagi kvenna

30.05.2012 20:00 - 21:00
Kristniboðssamkoma

31.05.2012 20:00 - 22:00
Föndurkvöld

06.06.2012 20:00 - 21:00
Kristniboðssamkoma



Hafa samband
Senda inn bænarefni