Kristniboðssambandið


Fara menn ekki í kirkju til að sýnast? PDF Prenta Senda
Jú, hugsanlega sækja einhverjir í guðshús til að láta taka eftir sér. Eða þeim þykir það góður siður. Og kannski eru sumir miklu meiri kirkjumenn en kristnir menn í daglegu lífi sínu. Það er mikil hræsni á jörðinni. Menn smjaðra fyrir öðrum vegna peninga. Menn lýsa yfir einlægni sinni og fara síðan á bak við viðmælandann. Aldrei er hræsnin eins ógeðfelld en í tengslum við trúmál. Lestu það sem Jesús segir í Matt. 6 í Nýja testamentinu. Verst er að reyna að telja Guði trú um að við séum betri en aðrir. Þú þekkir sögu Jesú um faríseann og tollheimtumanninn, Lúk. 18.

En látum hræsnina ekki setja okkur út af laginu. Menn geta verið að látast hver fyrir öðrum en ekki fyrir Guði. Og hann viðurkennir aldrei hræsnarana. Þeir fara út úr guðsþjónustunni jafntómir og þegar þeir komu inn, nema kannski af sjálfsánægju.

Menn hafa „svindlað sig inn" á knattspyrnuvöll en það kemur ekki í veg fyrir að aðrir fari að sjá kappleik. Stundum svíkjast menn um að borga fargjald t.d. með áætlunarvagni en það aftrar því ekki að aðrir fari með næsta vagni sem til sama staðar. Sumir læknar eru loddarar - og samt leita menn læknis þegar þörf krefur. Hræsnarar - þeir mega ekki stjórna því hvort ég legg eyrun við fagnaðarerindinu eða ekki. Þeir geta blekkt menn en ekki Guð. Og afstaða þeirra til Guðs hefur ekki áhrif á afstöðu Guðs til mín. Það verður mér ekki til afsökunar á efsta degi að hræsnarar hafi verið til.

Og eitt enn að lokum. Þegar við gáum að finnum við öll vott af hræsni í eigin barmi. Samt megum við koma fram fyrir Guð, líka í guðshúsi með öðrum. Guð hafnar okkur ekki af því að við elskum hann ekki eins og ber. Við komum í návist hans, ekki til að sýna honum hreint hjarta - heldur óhreint - og til að þiggja það sem hann býður okkur, óverðskuldaða náð sína fyrir sakir Jesú Krists.

Benedikt Arnkelsson
 

Dagskrá

23.05.2012 20:00 - 21:00
Kristniboðssamkoma

24.05.2012 16:00 - 18:00
Fundur í Kristniboðsfélagi kvenna

30.05.2012 20:00 - 21:00
Kristniboðssamkoma

31.05.2012 20:00 - 22:00
Föndurkvöld

06.06.2012 20:00 - 21:00
Kristniboðssamkoma



Hafa samband
Senda inn bænarefni