Kristniboðssambandið


Er hægt að treysta guðspjallamönnunum? PDF Prenta Senda
Guðspjöllin eru frásagnir af Jesú. Þau greina frá raunverulegum atburðum. Höfundarnir eru menn sem voru sjónar- og heyrnarvottar eða þekktu slíka votta.

Guðspjallamennirnir hétu Matteus, Markús, Lúkas og Jóhannes. Matteus var einn af nánustu lærisveinum Jesú, í hópi postulanna. Samkvæmt fornum heimildum var Markús túlkur Péturs á trúboðsferðum hans og skráði frásagnir hans. Allir vita að Pétur var í hópi postulanna. Lúkas var læknir. Við vitum ekki hvort hann sá Jesú en draga má þá ályktun af Postulasögunni, sem hann samdi auk guðspjallsins, að hann hafi ferðast með Páli postula og kristniboða. Lúkas hefur og vafalaust hitt suma þeirra sem voru með Jesú. Jóhannes var einn af postulunum.

Meira um Lúkas. Hann var menntamaður og skrifaði góða grísku. Guðspjall sitt (og Postulasöguna) tileinkar hann Þeófílusi nokkrum. Vera má að sá hafi ætlað að styrkja Lúkas til ritstarfanna Það er athyglisvert hvernig Lúkas lýsir vinnubrögðum sínum. Hann er góður fræðimaður sem einungis vill hafa það sem satt er og rétt. Í upphafi guðspjallsins segir hann að margir hafi tekið sér fyrir hendur að segja sögu Jesú og þeir hafi stuðst við frásagnir sjónarvotta og kristinna manna. Þessar frásögur kveðst Lúkas hafa athugað vel og rakið þær allt til upphafsins. Síðan ákvað hann að rita samfellda sögu handa Þeófílusi svo að sá hefði í höndunum tryggt heimildarrit og gæti prófað sannindi frásagna, sem hann hefði heyrt, í ljósi þess sem Lúkas hefði ritað.

Pétur hefur eflaust heyrt efasemdaraddir fólks þegar hann prédikaði um Jesú Krist. En hann hikar ekki við að fullyrða að hann fari með rétt mál. Í Nýja testamentinu eru tvö bréf frá hans hendi. Í síðara bréfinu, 1,16, skrifar hann: „Ekki fylgdum vér uppspunnum skröksögum, er vér kunngjörðum yður mátt og komu Drottins vors Jesú Krists, heldur vorum vér sjónarvottar að hátign hans."

Jesús sagðist vera sannleikurinn. Lærisveinarnir umgengust hann og lærðu af honum. Hann fór mjög hörðum orðum um hræsni. Hræsni er óheilindi, ósannindi. Sú hugsun gegnsýrir kristindóminn að menn skuli vera einlægir og heiðarlegir.

Þegar kristnir menn fóru að kenna og prédika töluðu þeir á sama hátt. „Ljúgið ekki hver að öðrum," segir Páll við Kólossumenn (Kól. 3,9) og við Efesusmenn segir hann: „Talið sannleika hver við sinn náunga" (Efes. 4,25). Kristindóminn kallar Páll „orð sannleikans" (Kól. 1,5) og Pétur „veg sannleikans" (1. Pét. 2,2).

Biblían ber með sér að hún segir satt.
 
Benedikt Arnkelsson
 

Dagskrá

23.05.2012 20:00 - 21:00
Kristniboðssamkoma

24.05.2012 16:00 - 18:00
Fundur í Kristniboðsfélagi kvenna

30.05.2012 20:00 - 21:00
Kristniboðssamkoma

31.05.2012 20:00 - 22:00
Föndurkvöld

06.06.2012 20:00 - 21:00
Kristniboðssamkoma



Hafa samband
Senda inn bænarefni