Kristniboðssambandið


Er maðurinn botnfrosinn? PDF Prenta Senda
 Ef átt er við hvort menn séu sneyddir allri vinsemd og kærleika er svarið nei. Á hinn bóginn er engin ástæða til að horfa á heiminn gegnum rósrauð gleraugu. En mennirnir eru ekki djöflar. Minnistu þess að móðir þín hafi vakað við rúm þitt þegar þú varst fársjúkur? Manstu að faðir þinn vann baki brotnu til að sjá fyrir heimilinu? Eða systir þín hvað hún beið ástvinar síns með mikilli óþreyju þegar hans var von úr ferðalagi? Og hve augu þeirra ljómuðu þegar þau hittust? Og þú hefur sjálfur fundið hlýtt handtak góðs vinar, er ekki svo?

Sá sem heldur því fram að ekkert nema sorti fylli mannshjartað hlýtur að vera sjálfur fullur af beiskju eða bölsýnn úr hófi fram - eða er hann að réttlæta eigingirni sjálfs sín? Enginn getur lifað án kærleika. Við þörfnumst lofts til að lifa og líf okkar er á sama hátt háð því að við þiggjum og auðsýnum kærleika, annars brenglaðist sál okkar.

Hitt er rétt að mikið böl er í heiminum og við erum harla eigingjörn. Einhver hefur sagt: Orðið kærleika skrifum við með litlum staf en Ég með stórum staf. Það er vissulega mikill skortur á náungakærleika í heiminum. En leggjum ekki árar í bát. Jafnvel þótt hvert hjarta yrði kalt og við fyndum ekki annað en hatur og sjálfselsku í umgengni við aðra þá hefur ekki slokknað hinn mikli kærleikur sem Guð ber í brjósti til allra manna. Já, þótt við gleymdum allri tillitsemi og olnboguðum okkur áfram hver sem betur gæti þá hefur Guð ekki snúið baki við okkur. Hann sannaði það fyrir okkur með því að senda son sinn til jarðarinnar. „Því að svo elskaði Guð heiminn að gaf son sinn." Jesús lagði líf sitt í sölurnar til að frelsa mennina. Og hann sagði við lærisveina sína: „Ég er með yður alla daga, allt til enda veraldar."

Því má segja: Ástæðan til þess að ljós kærleikans er dauft í mannheimi er sú að okkur gengur illa að veita kærleika Guðs viðtöku, þakka fyrir hann og láta þakklætið koma fram í verki með því að þjóna náunganum. Þess vegna kallar Biblían okkur til afturhvarfs, til að opna hjartað fyrir Jesú Kristi. Hefur þú gert það?

Benedikt Arnkelsson
 

Dagskrá

23.05.2012 20:00 - 21:00
Kristniboðssamkoma

24.05.2012 16:00 - 18:00
Fundur í Kristniboðsfélagi kvenna

30.05.2012 20:00 - 21:00
Kristniboðssamkoma

31.05.2012 20:00 - 22:00
Föndurkvöld

06.06.2012 20:00 - 21:00
Kristniboðssamkoma



Hafa samband
Senda inn bænarefni