| Hvað með önnur trúarbrögð? |
|
|
|
|
"Þessi trúarbrögð - eru þetta ekki allt saman leið að sama marki? Eru þau ekki öll leið til Guðs?" Ef til vill kann þér að virðast öll trúarbrögðin vera svipuð, vegna þess að í flestum þeirra kemur fram leit mannsins að friði og tilraun hans til að komast til Guðs eða eignast einhvers konar sælu í framtíðinni. Trúarbrögðin leggja áherslu á aðferðirnar til að ná himnasælu. Það eru mörg boð og bönn og reglur sem menn þurfa að fylgja og uppfylla. Menn eru eins og að reyna að klifra upp til Guðs. Trúarbrögðin segja þér hvað þú verður að gera til að komast til Guðs. Kristindómurinn er frábrugðinn öllum öðrum trúarbrögðum. Í kristinni trú sjáum við kærleika Guðs birtast í því að hann sjálfur kemur til okkar mannanna. Við þurfum ekki að klifra upp til hans: Hann hefur sjálfur komið og uppfyllt allar reglurnar fyrir okkur, lögmálið sem kemur fram í Gamla testamentinu. Guð sendi son sinn Jesú Krist í heiminn til að bjarga okkur mönnum vegna þess að við getum ekki frelsað okkur sjálf! Það eina sem við þurfum að gera er að trúa á Jesú, Guðs son, og fylgja honum. Hugsum okkur að við séum eins og fallin niður í grifju. Trúarbrögðin koma og kasta til okkar kaðalbúnti og segja okkur að draga okkur sjálf upp. Í kristinni trú kemur Jesús og fer sjálfur ofan í gryfjuna og lyftir okkur upp úr henni. Trúarbrögðin eru yfirleitt miklar kenningar og kennisetningar, eða aðferðir sem á að fylgja. Kristin trú er ekki kenning. Þegar Jesús var tekinn af lífi urðu lærisveinar hans hræddir. Þeir héldu að allt væri búið því að hann sem þeir elskuðu og trúðu á var horfinn. Þegar Búdda lá fyrir dauðanum komu lærisveinar hans og spurðu hvað yrði um þá eftir að hann væri allur. Búdda svaraði: Það verður allt í lagi. Þið hafið kenninguna. Hún skipti öllu máli, ekki hann sjálfur. Kristin trú er fyrst og fremst lifandi kærleikssamfélag við persónu. Jesús er lifandi frelsari. Hann lifir í dag og er enn nálægur með kærleika og fyrirgefningu. Þess vegna getum við fylgt honum og átt samfélag við hann sem persónu. Að vera lærisveinn Jesú er að þekkja hann, elska hann, trúa á hann, tilheyra hönum, vera undirgefinn honum, hlýða honum. Fylgjendur Jesú fengu ekki boð um að breiða út kenningu og aðferðir, heldur gera menn að lærisveinum Jesú. Þeir áttu að vitna um hann sjálfan. Ef þú vilt sannreyna að kristin trú sé eina leiðin sem er fær til Guðs skaltu lesa orð Jesú, tileinka þér þau og fylgja honum . Þá mun heilagur andi sannfæra þig og sýna þér sannindin í því sem Pétur postuli sagði um hann: "Ekki er hjálpræðið í neinum öðrum. Og ekkert annað nafn er mönnum gefið um víða veröld, sem getur frelsað oss." Guðlaugur Gunnarsson |
Aðalvalmynd
Dagskrá
23.05.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma
24.05.2012 16:00 -
18:00
Fundur í Kristniboðsfélagi kvenna
30.05.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma
31.05.2012 20:00 -
22:00
Föndurkvöld
06.06.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma



