Kristniboðssambandið


Hvað felst í því að biðja? PDF Prenta Senda
Trúarlífið er gagnkvæm vinátta, og það er bænin sem fær þessa vináttu til að vaxa og þroskast.

Bæn er að tala við Jesú um hvað sem er, hvar sem er og hvenær sem er. Bænin er kölluð andardráttur trúarlífsins.

Bænin er bein lína þín til höfuðstöðvanna. Þetta er næstum eins og þú værir með talstöð á þér og gætir haldið órofnu sambandi. Bænin setur þig í beint samband við leiðtogann, Jesú Krist. Frá honum geturðu fengið ráð, hjálp og leiðsögn allan tímann.

Ef Guð veit allt, hvers vegna á maður þá að biðja?

Þegar þú biður, dýpkar þú vináttu þína við Jesú. Bæn er ekki bara að biðja um að fá alls konar hluti. Hún er samfélag. Bæn er að vera með honum og deila öllu með honum. Guð er almáttugur. Hann veit allt. Hann hefur fullkomna stjórn á öllu, og hann elskar þig og lætur sér mjög annt um hvernig þér líður. Á sama hátt og jarðneskum föður þykir vænt um að heyra um allt sem barnið hans hefur aðhafst um daginn, þannig vill einnig okkar himneski faðir mjög gjarnan heyra um allt sem við höfum fyrir stafni - um vonir og gleði, jafn mikið og um ótta og áhyggjur. Jesús bað til föður síns meðan hann var hér á jörðu. Ef hann hafði þörf fyrir að biðja, hversu miklu fremur ættu þá ekki lærisveinar hans að hafa það?

Hann kenndi okkur að biðja og lofaði að svara hverri einustu bæn. Við verðum bara að muna að svarið getur stundum verið "nei", af því hann veit hvað okkur er fyrir bestu. Fyrirhyggjusamir foreldrar gefa ekki alltaf börnunum það sem þau biðja um. Stundum er svarið "bíddu", af því tíminn er ekki kominn ennþá, og örðum stundum getur svarið verið skýrt og greinilegt "já".

Hvernig á ég að biðja?

Bænin ætti að koma sem eðlileg afleiðing af að þú lest í Biblíunni. Reyndu að finna stað þar sem er næði og þú getir, ef mögulegt er, verið einn.

Hugsaðu um hann sem þú ætlar að hitta. Stundum er gott að lesa lofgjörðarsálm, eins og t.d. í Davíðssálmum 95, 98, Sálm 100, 147 eða 150. Finndu hve það er gott að vera í nærveru hans. Guð vill svo gjarnan að þú komir til sín á þennan hátt.

Játaðu syndir þínar. Við komum ávallt fram fyrir Guð sem syndarar sem þurfa á fyrirgefningu að halda. Bið hann að sýna þér í hvaða aðstæðum þú hafir syndgað eða brugðist. Biddu hann að fyrirgefa þér og hjálpa þér til að sigrast á hinu illa næst er þú verður fyrir freistingu.

Þakkaðu. Notaðu nokkrar mínútur til þess að hugsa um hve mikið þú hefur fyrir að þakka:

    * Þakkaðu fyrir að syndir þínar eru þér fyrirgefnar og að hann elskar þig;
    * Þakkaðu fyrir Drottin Jesú;
    * Þakkaðu fyrir Biblíuna, Orð Guðs, og Heilagan Anda;
    * Þakkaðu fyrir kristna vini og fjölskyldu þína og fyrir heilsu og hæfileika;
    * Þakkaðu fyrir svar Guðs við bænum þínum.

Bið fyrir öðrum. Þú skalt verða þér úti um litla minnisbók og skrifaðu upp lista yfir þá sem þú ætlar að biðja fyrir - fjölskyldu og vinum, leiðtogum ríkis og kirkju, og kristniboðunum. Bið fyrir nokkrum þeirra á hverjum degi, og vertu markviss og bið fyrir ákveðnum hlutum, komdu ekki bara með óljósar óskir um að Guð blessi þau öll. Notaðu ímyndunaraflið meðan þú biður og reyndu að sjá fyrir þér þann sem þú ert að biðja fyrir hverju sinni og aðstæðurnar sem viðkomandi er í. Þú getur beðið meðan þú lest dagblöðin og horfir á fréttirnar.
 
Bið fyrir sjálfum þér. Bið fyrir öllu sem upptekur huga þinn, fyrir morgundeginum, vandamálum eða verkefnum sem þú ert að vinna að, fyrir því sem þú óttast. Bið einnig um hjálp til að vera vitni um kristna trú þína heima hjá þér og í vinnunni, og að vilji Guðs megi verða í lífi þínu. Talaðu eðlilega, eins og við náinn vin, en mundu samtímis að það er sjálfur Guð sem þú stendur frammi fyrir.

Bið með öðru kristnu fólki. Jesús gaf okkur sérstakt loforð um að heyra þá bæn sem beðin er þar sem tveir eða þrír eru saman komnir í hans nafni. Á þennan hátt færð þú einnig nánara samband við aðra meðlimi í fjölskyldu Guðs.

Bið án afláts. Línan er alltaf opin, og þú getur talað við Guð hvenær sem er að degi eða nóttu.

Guðlaugur Gunnarsson
 

Dagskrá

23.05.2012 20:00 - 21:00
Kristniboðssamkoma

24.05.2012 16:00 - 18:00
Fundur í Kristniboðsfélagi kvenna

30.05.2012 20:00 - 21:00
Kristniboðssamkoma

31.05.2012 20:00 - 22:00
Föndurkvöld

06.06.2012 20:00 - 21:00
Kristniboðssamkoma



Hafa samband
Senda inn bænarefni