Kristniboðssambandið


Hvað með kirkjuna? PDF Prenta Senda
Sá sem er kristinn er fæddur inn í fjölskydu Guðs fyrir trúna á Jesú Krist. Kirkjan er annað nafn á fjölskyldu Guðs.

Kirkjan er ekki einhver bygging. Hún er fjölskyldusamfélag milli barna Guðs á jörðu og á himnum. Bræður og systur í þessarri fjölskyldu eru ekki bundin fjölskylduböndum að holdinu til heldur fyrir Heilagan Anda, sem verkar í okkur þannig að við elskum Jesú og hvert annað.

Kirkjan er heldur ekki neinn sértrúarsöfnuður eða trúarstefna, hvort heldur hún er nú kaþólsk eða mótmælendur. Hún nær yfir fólk úr öllum heiminum sem trúir á Jesú og vill fylgja honum, án tillits til litarháttar, bakrunns eða menntunar. Það eru margir söfnuðir á hverjum stað um sig innan þessarar einu alheimskirkju. Það eru anglikanar eða rétttrúnaðarsinnar, meþódistar, baptistar, rómversk kaþólskir, lútherskir eða hvítasunnumenn.

Að vera kristinn þýðir að þú tilheyrir kirkju sem nær til alheimsins, samtímis því sem þú átt heima í þínum eigin söfnuði á staðnum þar sem þú átt heima.

Þegar kristnir menn tala um að "fara í kirkju", er það að vissu leyti svolítið misvísandi, því hann eða hún eru þegar í kirkjunni. Það sem við eigum við, er auðvitað að maður ætli að fara í samkomuhús staðarins til þess að taka þátt í guðsþjónustu þar.

"En verð ég að fara á hverjum sunnudegi?"

Þú ættir frekar að spyrja öðruvísi: "Verð ég að heimsækja foreldra mína eða vini mína?" Svarið er nei. Þú verður ekki, en þú gerir það af því þér þykir vænt um þau.

Kristin trú byggist á kærleika - á kærleikssambandi. Guð elskar okkur. Þess vegna sendi hann Jesú. Við elskum hann af því hann elskaði okkur að fyrra bragði. Við elskum hvert annað af því við erum hluti af fjölskyldu Guðs, og af því að hann hefur fyllt hjörtu okkar með kærleika sínum.

Ef þú vilt í raun og veru og í einlægni fylgja Jesú, muntu einnig finna hjá þér þörf fyrir að tilbiðja Guð og vera samvistum við aðra meðlimi fjölskyldu Guðs til þess að þakka honum fyrir kærleika hans og gæsku við þig.

Þú munt finna hjá þér þörf fyrir að sýna opinberlega að þú tilheyrir Jesú Kristi. Þegar þú sækir guðsþjónustu eða kristilega samkomu í hverri viku, sýnir þú öðrum að þú ert einn af lærisveinum Jesú.

Þú munt finna hjá þér þörf fyrir að vitna meira um hann því meir sem þú lest í Biblíunni og útskýrt er fyrir þér það sem stendur þar, þannig að þú getir vaxið í trúnni.

Þú munt finna hjá þér þörf til að biðja með öðrum kristnum mönnum.

Og þú munt finna hjá þér þörf til að til að gefa ríkulega til að styðja og styrkja starfið í Guðs ríki hér heima og úti í heimi.

Postulinn Páll sagði að kirkjan væri eins og líkami og að Kristur væri höfuðið.

Það eru margir limir á einum líkama, t.d. handleggir, fætur, augu og eyru. Öll eru mikilvæg og hafa sína sérstaka hlutverki að gegna, samtímis því sem þeir eru háðir hverjir öðrum. Þannig er það einnig með kirkjuna, sem er líkami Krists. Hver limur er mikilvægur og hefur eitthvað sérstakt fram að færa til þess að allur líkaminn starfi rétt, vaxi og þroskist.

Þetta þýðir að hver einstök kristin manneskja er lífsnauðsynlegur hluti af kirkjunni. Enginn er lítilsvirði eða ónauðsynlegur.

Guðlaugur Gunnarsson
 

Dagskrá

23.05.2012 20:00 - 21:00
Kristniboðssamkoma

24.05.2012 16:00 - 18:00
Fundur í Kristniboðsfélagi kvenna

30.05.2012 20:00 - 21:00
Kristniboðssamkoma

31.05.2012 20:00 - 22:00
Föndurkvöld

06.06.2012 20:00 - 21:00
Kristniboðssamkoma



Hafa samband
Senda inn bænarefni