| Hvernig get ég sigrast á hinu illa? |
|
|
|
|
Þetta er spurning sem fólk, sem nýlega hefur komist til trúar á Jesú spyr sig gjarnan. Ef þannig er ástatt um þig langar mig einmitt að tala til þín. E.t.v. segirðu: "Ég þekki sjálfan mig. Ég mun aldrei geta staðið mig almennilega." Þegar þú eignast trú á Jesú, verður þú ekki fullkominn á einni nóttu, en þú verður heldur ekki skilinn eftir til að fálma þig áfram einn þíns liðs upp á eigin spítur. Ef þú hefur ákveðið að fylgja Jesú og trúir á hann, þá ert þú orðinn barn Guðs, og hann vill að þú líkist Jesú æ meira. Þess vegna hefur hann gefið þér Anda sinn - Heilagan Anda. Heilagur Andi er ekki einhver vofa eða ankannaleg vera. Hann er fullkomin persóna, en hefur þó ekki mannslíkama eins og við. Hann er sjálfstæð persóna með vilja. Hann getur elskað og veitt leiðsögn, verndað og hjálpað. Hann hefur mikið áhrifavald og kraft, því að hann er Guð. Hann er almáttugur og alvitur og getur verið alls staðar samtímis. Þegar þú fannst að þú þurftir á Guði að halda, var það Heilagur Andi, sem knúði þig. Þegar þú ákvaðst að verða kristinn, var það Heilagur Andi sem leiddi þig til að taka á móti Jesú. Heilagur Andi kemur inn í líf þitt þegar þú opnar hjarta þitt fyrir Jesú. Hann er gjöfin sem Jesús lofaði að allir kristnir menn ættu að fá. Jesús er sjálfur á himnum, en hann lifir og stjórnar lífi lærisveina sinna fyrir áhrif Heilags Anda. Heilagur Andi gefur kristnum mönnum örugga fullvissu um þeir séu börn Guðs og tilheyri fjölskyldu hans. Andinn hefur það sérstaka verk með höndum í hjarta hvers kristins einstaklings að hjálpa honum til að líkjast æ meir Jesú. Hann mun gefa þér, sem ert kristinn, styrk til að standa gegn freistingum og sigrast á slæmum ávönum. Þú munt áfram hafa gamla sjálfselskufulla eðli þitt til viðbótar nýja eðlinu, sem Guð hefur nú gefið þér. Það er nánast eins og fram fari reipitog innra með þér. Djöfullinn reynir að freista þín til að gera það sem er rangt og leiða þig burt frá kærleika Guðs. Heilagur Andi er þá þér til hjálpar til að sigrast á hinu illa og til að standa áfram með Guði. Heilagur Andi er miklu sterkari enn Djöfullinn, og hann vill að þú sigrist á freistingunni. Það er aðeins Heilagur Andi sem getur umbreytt eðli mannsins og gert sjálfselska menn óeigingjarna og umhyggjusama. Það er aðeins Heilagur Andi sem getur gefið þér kraft til að stjórna tungu þinni. Það er aðeins Heilagur Andi sem getur snúið reiði og vonslu í kærleika og samúð. Hann vill einnig láta hugarfar Jesú, kærleika hans, gleði, frið, þolinmæði, vingjarnleika, góðsemi, tryggð, auðmýkt og sjálfsstjórn fá rúm og vaxa í lífi þínu. Hann er ávallt til staðar til að leiða þig þegar þér finnst eitthvað óöruggt eða erfitt. Hann mun hjálpa þér að skilja Biblíuna. Hann mun hjálpa þér að biðja. Hann mun leiða þig á þann hátt að þú kemur auga á vilja Guðs og áætlun með líf þitt. Hann gefur gjafir og hæfileika þannig að þú getir þjónað Guði heima hjá þér, í söfnuðinum og í heiminum. Viðfangsefni Andans er að undirbúa hvern einstakan kristinn mann undir daginn mikla, þegar við fáum að sjá Jesú Krist augliti til auglitis á eilífu heimili okkar á himnum. Guðlaugur Gunnarsson |
Aðalvalmynd
Dagskrá
23.05.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma
24.05.2012 16:00 -
18:00
Fundur í Kristniboðsfélagi kvenna
30.05.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma
31.05.2012 20:00 -
22:00
Föndurkvöld
06.06.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma



