Kristniboðssambandið


Hvers vegna ætti ég að lesa Biblíuna? PDF Prenta Senda
Biblían er orð Guðs sjálfs. Guð talar til okkar mannanna gegn um Biblíuna. Orð Guðs er ekki eins og orð manna. Það er lifandi og kröftugt.

En talar Biblían satt? Eina leiðin til að finna það út er með því að lesa hana og fylgja því sem hún kennir.

Hvernig á ég að lesa Biblíuna? Hvar ætti ég að byrja?

Biblían er ekki auðveld bók. Þú þarft á hjálp að halda, og þú ættir að tileinka þér vissar aðferðir við lestur hennar. Það er t.d. ekki hyggilegt að byrja á byrjuninni með 1. Mósebók og síðan vinna sig áframhaldandi í gegn um Biblíuna. Þá myndir þú fljótlega keyra þig fastan í öllum lagasetningunum í 3. Mósebók. Það er heldur ekki hyggilegt að slá upp í Biblíunni af tilviljun og vona það besta.

Prófaðu að byrja t.d. á Markúsarguðspjalli. Síðan gætir þú lesið bréf Páls til Filippímanna, síðan Postulasöguna, fyrstu 25 sálma Davíðs og svo Jóhannesarguðspjall.

Þú munt aldrei geta skilið og komist til botns í öllu sem er í Biblíunni, en þú getur beðið Heilagan Anda um að hjálpa þér. Trúðu því að það er Guð sem talar til þín.

Mörgum kristnum mönnum finnst vera góð hjálp í því að spyrja sjálfa sig nokkurra spurninga, þegar þeir hafa lesið einhvern kafla í Biblíunni. Það gæti t.d. verið spurningar eins og: „Hvað lærði ég hérna um Guð, um Jesú og um okkur mennina?“ „Inniheldur þessi texti eitthvert loforð eða fyrirheit, eða dæmi sem ég ætti að taka til eftirbreytni, eða aðvörun sem ég ætti að taka alvarlega eða boðorð sem ég á að hlýðnast?“

Þú ættir að staldra við vers eða setningu sem talar eitthvað sérstakt til þín, lærðu það utan að og hafðu það hugfast sem vegarnesti þann daginn.

Reyndu að haga því þannig að þú getir tekið frá vissan tíma á hverjum degi þegar þú getur verið út af fyrir þig og í næði. Biddu Guð um að tala til þín gegn um orð hans. Reyndu þannig að hafa tíma til að hitta Jesú og lesa í Biblíunni. Það á e.t.v. ekki eftir að vera alltaf jafn auðvelt að framkvæma þetta fyrir alla, og þetta er ekki regla sem maður á að fylgja algjörlega í blindni. En það er mjög gagnlegt að nota dálitla stund á hverjum degi til Biblíulestrar, því að maður getur ekki stytt sér leið á neinn hátt til þess að vaxa í þekkingu á Jesú í trúarlífinu.

Best hefði e.t.v. verið ef þú hefðir orðið þér út um Biblíulestrar-áætlun fyrir daglegan Biblíulestur þinn. Þannig lesáætlun er t.d. hægt að fá ókeypis hjá Hinu Íslenska Biblíufélagi í Hallgrímskirkju í Reykjavík. Einnig eru til ýmsar lestrar leiðbeiningar við Biblíuna sem gefa manni gagnlegar ábendingar og fróðleik um það sem maður er að lesa. Hafðu samband við einhvern reyndan trúaðan einstakling um þetta. Hann eða hún mun áreiðanlega með gleði gefa þér ráð um hvað þú ættir að velja.

En um fram alt: Lestu Guðs orð. Það hefur í sér fólginn boðskap til þín frá skapara þínum og föður á himnum, boðskap sem getur valdið straumhvörfum í lífi þínu.

Guðlaugur Gunnarsson
 

Dagskrá

23.05.2012 20:00 - 21:00
Kristniboðssamkoma

24.05.2012 16:00 - 18:00
Fundur í Kristniboðsfélagi kvenna

30.05.2012 20:00 - 21:00
Kristniboðssamkoma

31.05.2012 20:00 - 22:00
Föndurkvöld

06.06.2012 20:00 - 21:00
Kristniboðssamkoma



Hafa samband
Senda inn bænarefni