| Hvernig bók er Biblían? |
|
|
|
|
Orðið „Biblía“ er komið úr grísku og þýðir „bækur“. Biblían er ekki bara ein bók. Hún samanstendur af 66 mismunandi bókum, sem skipt er í tvo meginhluta. Fyrst kemur Gamla testamentið með 39 bókum. Það greinir frá samskiptum Guðs og Ísraelsmanna eða gyðinga áður enn Jesús fæddist. Annar hlutinn, Nýja testamentið, er safn 27 bóka. Það greinir frá lífi Jesú, dauða hans og upprisu. Því næst segir það frá hvernig kristin trú breiddist út, en gefur jafnframt hagnýtar leiðbeiningar um hvernig maður á að lifa sem kristinn einstaklingur. Það tóm meira enn 1500 ár frá því elstu textarnir í Biblíunne voru skrifaðir þar til öll bókin lá fyrir eins og við þekkjum hana. Hún er skrifuð af meira enn fjörutíu einstaklingum, með mjög svo mismunandi bakgrunn: Sumir voru konungar, einn var forsætisráðherra, einn læknir, einn tollari, nokkrir fiskimenn og einn var bóndi. Fæstir þeirra hittu nokkurn tíma neinn hinna höfundanna. Samt sem áður kemur manni á óvart hve mikil eining og samheingi er í bókunum. Hver ætli sé ástæðan fyrir þessu? Guð talaði til höfunda Biblíunnar, og undir leiðsögn hans skrifuðu þeir svo niður orð hans og skipanir. Þeir settust ekki bara niður upp á eigið eindæmi og skrifuðu það sem þeir trúðu um eðli Guðs og orð hans. Aftur og aftur rekumst við á orðin: "Svo segir Drottinn" eða "Orð Drottins kom til mín..." Guð gerði þessa menn ekki eins og að ritvélum fyrir sig. Hann talaði til manna sem voru í nánu sambandi við hann. Hver og einn hefur sinn persónulega stíl og skráði Guðs orð á sinn eigin hátt með eigin orðum. Það er eins og Jóhannes segir: „Það sem vér höfum séð og heyrt, það boðum vér yður einnig.“ [1.Jóh.1:3] Þegar Pétur skrifar um bækurnar í Gamla testamentinu segir hann að þá „töluðu menn orð frá Guði, knúðir af heilögum anda.“ [2.Pét.1:21]. (Orðið "knúðir" hefur sömu merkingu og þegar við tölum um að seglbátur er „knúinn“ áfram af vindinum.) Páll postuli dró þetta saman í stutta setningu þegar hann skrifaði að „sérhver ritning er innblásin af Guði ...“ [2.Tím.3:16] Hvernig gátu lærisveinarnir munað allt, sem hann hafði sagt og gert. Svarið er að Jesús lofaði þeim að Heilagur Andi myndi „kenna yður allt og minna yður á allt það sem ég hef sagt.“ Guð opinberaði lög sín og vilja fyrir mönnum og þeir skráðu það niður svo að það kæmi öllum kynslóðum að notum, og ekki einungis þeirra eigin kynslóð. Þess vegna er Biblían öðruvísi enn allar aðrar bækur. Gegn um hana talar Guð til okkar í dag, og hver einasta síða vitnar um að það er hann sem er hinn eiginlegi höfundur. Þetta er orð Guðs til okkar manna. Biblían segir okkur hvernig Guð er og hvernig við getum kynnst honum. Án hennar myndum við nánast ekkert vita um hann. Við myndum hvorki vita hvers vegna við erum hér eða hvert við förum. Biblían varpar ljósi á öll vandamál. Hún talar með valdi um líf og dauða og eilífðina. Hún er vegvísir okkar á ferðalegi okkar frá jörðinni til himins. En talar Biblían satt? Get ég treyst henni? Biblían er meira enn bók í mannkynssögu, jafn vel þótt hún sé full af sögulegum staðreyndum og atburðum sem hægt er að staðfesta með öðrum sagnfræðilegum heimildum. Biblían er meira enn mikið bókmenntaverk, jafn vel þótt hún hafi að geyma undursamleg ljóð og grípandi frásögur. Biblían er ekki kennslubók í náttúruvísindum, þrátt fyrir að hún veiti okkur miklar upplýsingar um heiminn sem við lifum í. Viðfangsefni náttúruvísindanna er að finna út hvernig hlutirnir hafa orðið til og hvert er aðli þeirra og hlutverk. Biblían er miklu meira upptekin að svara spurningunni um hvers vegna. Biblían er boðskapur Guðs, skapara þíns, til þín. Hún á erindi við þig. Orð Guðs er ekki eins og orð manna. Það er öruggt og áreiðanlegt og það er lifandi. Biblían lýsir því á eftirfarandi hátt: „Orð Guðs er lifandi og kröftugt og beittara hverju tvíeggjuðu sverði og smýgur inn í innstu fylgsni sálar og anda, liðamóta og mergjar, það dæmir hugsanir og hugrenningar hjartans.“ Til þess að komast að hinu sanna um Biblíuna ættir þú að lesa hana og taka boðskap hennar til þín persónulega. Guðlaugur Gunnarsson |
Aðalvalmynd
Dagskrá
23.05.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma
24.05.2012 16:00 -
18:00
Fundur í Kristniboðsfélagi kvenna
30.05.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma
31.05.2012 20:00 -
22:00
Föndurkvöld
06.06.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma



