| Hvað felst í því að fylgja Jesú? |
|
|
|
|
Kristinn einstaklingur er ekki einhver sem hefur ákveðið að fylgja Jesú á sama hátt maður ákveður að skrá sig í golfklúbb eða jafnvel í einhvern söfnuð. Kristinn maður er einstaklingur sem Jesús hefur valið. Hann sagði: "Þér hafið ekki útvalið mig, heldur hef ég útvalið yður." (Jóh. 15:16) Kristinn maður er útvalinn til að vera lærisveinn Jesú. Það merkir ekki bara að maður eigi að þekkja hann, elska hann og treysta honum, heldur einnig að maður gefur sig algjörlega honum á vald. Jesús lýsti lærisveini sínum þannig: "Hver sem vill fylgja mér, afneiti sjálfum sér, taki kross sinn og fylgi mér." (Mt 16:24) AÐ AFNEITA SJÁLFUM MÉR Það var ekki að halda sér frá sætindum á föstunni eða að neita sér um einhvern munað sem Jesús var að tala um. Það var eitthvað miklu róttækara, nefnilega að segja „nei“ við gamla, sjálfselskufulla lífsstílinn og segja „já“ við Jesú. Lærisveinn er sama og nemandi, og sem nemandi vil ég hlusta á Jesú og hlýða honum. Líf mitt tilheyrir ekki lengur mér sjálfum þannig að ég geti farið með það eins og ég vil. Nú tilheyrir það Jesú. Hann er Drottinn og meistari yfir öllu sem ég er og á. Ég er ábyrgur gagnvart honum um allt sem ég geri við það sem í raun réttri tilheyrir honum. AÐ TAKA KROSS MINN Fyrir Jesú táknaði krossinn sársauka og niðurlægingu, einsemd og höfnun, þjáningu og dauða. Jesús kallar lærisveina sína til að ganga sama veg og hann og vera ekki undrandi yfir því þegar upp kemur misskilningur og mótlæti. Það eru líkast til fleiri kristnir einstaklingar í heiminum sem þjást vegna trúar sinnar nú enn nokkru sinni fyrr í mannkynssögunni. Að taka kross sinn er mynd af persónulegri fórn. Jesús gaf líf sitt á krossinum okkar vegna. Nú biður hann okkur sem viljum vera lærisveinar hans um að gefa honum líf okkar. AÐ FYLGJA JESÚ Jesús hefur lærisveinum sínum Heilagan Anda sem leiðir þá og huggar, styrkir og gefur þeim kærleika til Jesú og til annarra manna. Lærisveinr Jesú reyna að lifa eins og Drottinn þeirra með því * að sýna öðrum umhyggju einsog Jesús gerði. * að taka öðrum mönnum eins og þeir eru og elska þá eins og Jesús gerði. * að gefa öðrum mönnum, einkum þeim sem þarfnast þess, af tíma sínum. * að vera ljós í heiminum með því að lifa sönnu, heiðarlegu og umhyggjusömu lífi eins og Jesús gerði. Jesús skorar á þig og segir: „Fylg þú mér!“ Guðlaugur Gunnarsson |
Aðalvalmynd
Dagskrá
23.05.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma
24.05.2012 16:00 -
18:00
Fundur í Kristniboðsfélagi kvenna
30.05.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma
31.05.2012 20:00 -
22:00
Föndurkvöld
06.06.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma



