Kristniboðssambandið


Hvernig veit ég að mér hefur verið fyrirgefið? PDF Prenta Senda
„Er virkilega hægt að vita að hver einasta synd, hver ill hugsun, sérhvert illt athæfi, hvert hugsunarlaust orð og hvert einasta tilvik, er eigingirni og sjálfselelska af minni hálfu hafa fengið að ráða, geti verið fyrirgefin og þurrkuð út?“

Eitt af því sem syndin kemur til leiðar er að hún fjarlægir okkur Guði, þannig að við álítum hann vera fjarri okkur og óraunverulegan og að hann lætur litlu varða um örvæntingu og þjáningu okkar mannanna. Vandinn við flesta er að þeir halda að þeir geti brúað þetta bil með eigin áreynslu. Þeir halda að þeir geti blíðkað Guð með því að vera góðir, einlægir, heiðarlegir og trúræknir.

En Guð tekur okkur gild eins og við erum vegna þess sem Jesús hefur gert, og aðeins vegna þess, og alls ekki vegna neins sem okkur myndi einhvern tíma takast að gera. Okkur getum aldrei náð til Guðs af eigin rammleik. Kross Jesú Krists er eina brúin sem dugar til að brúa bilið milli okkar og Guðs. Leiðin til baka til Guðs er opin öllum sem hætta að setja traust sitt á eigin góðmennsku og setja þess í stað traust sitt að fullu og öllu á Jesú.

Krossinn segir okkur að Guð vilji fyrirgefa okkur allar syndir okkar vegna þess sem Jesús gerði. Þegar Jesús dó einn og yfirgefinn, píndur og hæddur á krossinum, þá tók hann á sig hegninguna sem við áttum skilið að hljóta vegna synda okkar.

Það var þetta sem Pétur skyldi þegar hann sagði: „Hann bar sjálfur syndir vorar á líkama sínum upp á tréð.“ [1.P 2:24]

Og Jóhannes gat skrifað í öruggri vissu: „Hann er friðþæging fyrir syndir okkar.“ [1.J 2:2]

Páll sá að Jesús hafði tekið allan dóminn yfir syndinni á sig. Hann skrifar: „Nú er því engin fordæming fyrir þá, sem tilheyra Kristi Jesú.“ [R 8:1]


Enginn þeirra sem setur traust sitt á Jesú mun mæta dómi Guðs yfir syndum þeirra. Dómurinn er liðin tíð. Jesús tók hann út fyrir okkur á krossinum. Það var þetta sem hann átti við þegar hann hrópaði: „Það er fullkomnað!“ Syndasekt allra manna hefur verið greidd.

Krossinn segir okkur að Jesús hefur greitt þessa óhemju miklu syndaskuld okkar að fullu og öllu, í eitt skipti fyrir öll. Þegar við tökum við Jesú inn í líf okkar, fáum við fyrirgefningu Guðs. Allar syndir verða þurrkaðar út. Guð hefur ekki einungis lofað að fyrirgefa alla synd okkar, heldur að gleyma henni, þannig að það er eins og hún hafi aldrei átt sér stað. Jóhannes, sem var einn af lærisveinum Jesú skrifaði:

„Blóð Jesú, sonar hans, hreinsar oss af allri synd.“ [1. Jóh 1:7].


Guðlaugur Gunnarsson
 

Dagskrá

23.05.2012 20:00 - 21:00
Kristniboðssamkoma

24.05.2012 16:00 - 18:00
Fundur í Kristniboðsfélagi kvenna

30.05.2012 20:00 - 21:00
Kristniboðssamkoma

31.05.2012 20:00 - 22:00
Föndurkvöld

06.06.2012 20:00 - 21:00
Kristniboðssamkoma



Hafa samband
Senda inn bænarefni