|
Ef þú hefur opnað þig fyrir Jesú og beðið hann um að koma inn í líf þitt, þá veistu að þú hefur tekið á móti honum. - En hefur hann tekið á móti þér? Hvernig getur þú verið viss um það? E.t.v. finnst þér ekki að þér líði neitt öðru vísi enn áður. Þér líður kannski ekki eins og þú sért kristinn. Hvernig getuðu þá orðið öruggur um að Jesús Kristur er kominn inn í líf þitt og að hann er nú nálægur og lifandi vinur þinn?
Eitt af einkennum kristinnar trúar, og það sem veitir hvað mesta gleði, er að Guð vill að við sleppum við að vera í nokkrum vafa um það að við tilheyrum honum, og hann okkur. Það er þrennt sem gerir okkur örugg á þessu:
1. Biblían
2. Krossinn
3. Heilagur Andi.
Við eigum eftir að ræða um þessa liði hvern um sig síðar.
Hvernig get ég vitað að ég á eilíft líf? Hvernig get ég vitað að Jesús Kristur muni vera með mér alla daga? Af því að Guð segir það í Biblíunni.
Biblían er full af ótvíræðum loforðum Guðs til allra sem setja traust sitt á Jesú. Hún sýnir okkur hvernig maður verður kristinn, og hún sýnir okkur leiðina áfram. Við getum ekki treyst eigin tilfinningum. Ef þú ert þreyttur eða veikur, eða átt í einhverjum vandræðum heima fyrir eða í vinnunni, þá líður þér e.t.v. ekki eins og þú álítur að kristnum manni eigi að líða. Tilfinningarnar sveiflast upp og niður, þess vegna skaltu ekki treysta þeim. Lærðu í staðinn að treysta fyrirheitum Guðs, því að þau eru ætíð hin sömu.
Hvernig veit ég að Guð elskar mig? Jesús sagði: "Því svo elskaði Guð heiminn, að hann gaf son sinn eingetinn til þess að hver sem á hann trúir glatist ekki heldur hafi eilíft líf." (Jóh 3,16) Þetta er svarið, þú þarfnast ekki frekari sönnunar á kærleika Guðs. Guð sendi Jesú til þess að deyja á krossinum, svo að þú eignaðist eilíft líf.
Hvernig veit ég að Jesús sé kominn inn í líf mitt? Jesús sagði: "Ef einhver heyrir raust mína og lýkur upp dyrunum, þá mun ég fara inn til hans ..." (Opinberun Jóhannesar 3,20)
Ef þú hefur beðið Jesú um að koma inn í líf þitt, þá hefur þú einnig öruggt loforð hans um að hann muni koma inn. Hann segir skýrt og greinilega: "þá mun ég fara inn til hans." Hann segir ekki "Þá mun ég kannski koma, ef þú lofar að vera góður." Ekki treysta því hvernig þér sjálfum líður. Hafir þú beðið hann um að koma, þá getur þú verið hundrað prósent viss um að han kemur inn í líf þitt, af því að hann segir það sjálfur. Guð stendur alltaf við það sem hann lofar.
Hvernig get ég verið öruggur um að hann muni ávallt vera með mér? Jesús sagði: „Ég er með yður alla daga, allt til enda veraldar.“ [Matteus 28,20] Þér finnst kannski ekki alltaf að hann sé þarna, og þú getur líka alls ekki séð hann, en hann mun vera með þér í sérhverjum kringumstæðum, af því að hann hefur lofað því sjálfur. Við gerum treyst þeim loforðum sem hann gefur.
Eitt af undursamlegustu loforðunum sem Jesús hefur nokkurn tíma gefið, er þetta: „Þann sem til mín kemur, mun ég alls eigi brott reka.“ [Jóh. 6,37b]
Þú hefur komið til Jesú. Nú tilheyrir þú honum, - ekki einungis hér í tíma, heldur um alla eilífð. Það er ekkiert jafn öruggt og þetta.
Manstu eftir dæmisögu Jesú, þar sem hann lýsir Guði sem föður, sem tekur í kærleika á móti syni sínum sem hafði horfið burt frá honum og lent í einhverri vitleysu. Þeir sem snúa sér til Guðs, geta verið vissir um að hann tekur við þeim.
Guðlaugur Gunnarsson
|