|
Ef þú vilt verða kristinn í raun og veru eru fjögur atriði sem ég vil benda þér á:
1. ÞÚ ÞARFT AÐ VIÐURKENNA SVOLÍTIÐ: Þú þarft að viðurkenna að þú hafir syndgað gegn Guði. Játaðu allt sem þú hefur sagt, hugsað og gert í lífi þínu, og þú veist innra með þér að var rangt. Þú skalt af heilu hjarta sýna að þér þyki leitt hve oft þú hefur virt kærleika Guðs að vettugi og farið þínar eigin leiðir. Vertu fús til að snúa þér burt frá öllum hugsunum, orðum, gjörðum og venjum, sem þú veist að eru rangar.
2. ÞÚ ÞARFT AÐ TRÚA SVOLITLU: Trúðu að Jesús Kristur er sá sem dó á krossinum, þar sem hann bar alla ekt þína og tók út hegninguna fyrir þína synd. Við eigum skilið að taka út refsingu fyrir það ranga sem við höfum gert fyrir auglitil Guðs. Trúðu því að Jesús hafi tekið á sig þá refsingu, sem þú áttir skilið.
3. ÞÚ ÞARFT AÐ ÍGRUNDA SVOLÍTIÐ: Veltu því fyrir þér að Jesús lofaði aldrei að það yrði auðvelt að fylgja honum. Sumt fólk mun misskilja þig, hlægja að þér og vinna gegn þér, alveg á sama hátt og það gerði við Jesú sjálfan. En að verða kristinn er að eignanst Jesú sem Drottinn og Meistara yfir lífi þínu. Þetta þýðir að hver einasti og minnsti hluti lífs þíns, vinnun, vináttu, tíma og peninga séu afhent honum til yfirráða.
4. ÞÚ ÞARFT AÐ GERA SVOLÍTIÐ: Leyfðu Jesú Kristi að koma inn í líf þitt, þ.e.a.s. gefðu honum aðgang að þér, hugsunum þínum, hjarta þínu, gefðu þig honum á vald og leyfðu honum að verða Drottinn þinn, sem leiðir þig á hverjum dagi. Drottinn þýðir sá sem ríkir yfir þér, leiðtogi þinn, nánast konungur þinn. Leyfðu Jesú Kristi að verða Frelsari þinn, sem bjargar þér frá afleiðingum syndarinnar, kemur sambandi þínu við skapara þitt í rétt horf. Leyfðu Jesú Kristi að vinur þinn, sem ávallt vill vera með þér, sama hvað gengur á, sama hvað kemur fyrir.
Mundu, að þú þarft ekki og getur heldur ekki unnið þér til neinna verðleika hjá Guði. Guð hefur gert allt sem gera þarf til þess að þú getir eignast frið við hann, fyrirgefningu syndanna og eilíft líf í samfélagi við Jesú. Þitt er aðeins að taka ákvörðunina og leyfa Jesú að koma inn í líf þitt. Það eru allt of margir sem láta vera að taka þetta síðasta skref, og kynnast þess vegna aldrei Jesú Kristi í raun og veru.
Þetta kemur e.t.v. skýrast fram í síðustu bók Biblíunnar. Í Opinberun Jóhannesar, 3. kafla og 20. versi er það Jesús sjálfur sem talar. "Hann segir: Sjá, ég stend við dyrnar og kný á. Ef einhver heyrir raust mína og lýkur upp dyrunum, þá mun ég fara inn til hans og neyta kvöldverðar með honum og hann með mér."
Lífið þitt er sem hús. Jesús Kristur stendur fyrir utan og bíður. Hann ryðst ekki inn, því að það er ekki leið kærleikans. Hann vill að þú biðjir hann að koma inn. Handfangið er á dyrunum að innanverðu og það er einungis þú sem getur lokið upp. Þú verður kristinn í raun og veru þegar þú lýkur upp dyrunum að lífi þínu fyrir Jesú Kristi og biður hann um að koma inn og búa í hjarta þínu og lífi.
Hefurðu nokkurn tíma gert þetta? E.t.v. hafðirðu ekki áttað þig á því að þú þyrftir að taka eitthvert skref. Það getur verið að þú sért skírður og sækir kirkju, já, jafnvel að þú lesir í Biblíunni og biðjir bænir, en látir Jesú samt standa fyrir utan líf þitt. Hugsaðu alvarlega um þessa spurningu.
Hefurðu leyft Jesú Kristi að koma inn í líf þitt, eða stendur hann ennþá fyrir utan? Viltu ekki bjóða honum inn, eða á hann áfram að standa fyrir utan?
Þú verður einhvern tíma að taka afstöðu. Tíminn er að hlaupa frá þér. Eftir að þú deyrð, færðu ekki fleiri tækifæri til að taka við Jesú Kristi. Þá verður það of seint.
Ef þig langar til að taka við Jesú og hleypa honum inn í líf þitt, þá er gott ef þú getur verið í næði út af fyrir þig.
Hugsaðu um kærleika Jesú til þín - hugsaðu um krossinn, skömmina og þjáninguna, um líkama hans sem var negldur á krossinn, og um blóðið sem rann úr sárum hans - það var allt fyrir þig.
Hugsaðu um Jesú, sem stendur nú við hjartadyr þínar og knýr á og biður um að fá að koma inn í líf þitt. Þú hefur heyrt rödd hans, og þú þráir af öllu hjarta að fá að kynnast honum náið.
Ef þú vilt opna þig fyrir Jesú og hleypa honum inn í líf þitt þá geturðu beðið með mér stutta bæn. Biddu þessarar bænar hægt og rólega og með íhugun, setningu eftir setningu, og hugsaðu vel um hvað þú ert að segja og gera:
Við skulum biðja:
Drottinn Jesús Kristur, Ég veit að ég hef syndgað gegn þér í hugsunum, - orði - og verki. Það er svo magt gott sem ég hef vanrækt að gera. Fyrirgefðu mér! Ég iðrast af einlægu hjarta synda minna og ég sný mér nú frá öllu því sem ég veit að er rangt. Þú gafst líf þitt í sölurnar fyrir mig, þegar þú dóst á krossinum. Þess vegna vil ég í þakklæti til þín gefa þér líf mitt. Nú bið ég þig um að koma inn í líf mitt. Komdu, og vertu Frelsari minn, og bjargaðu mér. Komdu, og vertu Drottinn minn, og leiddu mig. Komdu, og vertu vinur inn, og vertu alltaf hjá mér. Þakka þér fyrir að þú heyrir og svarar mér þegar ég bið í Jesú nafni, Amen.
Ef þú hefur sagt þessa bæn upphátt eða í hljóði og meint hvert orð, þá hefur þú beðið Jesú Krist um að koma inn í líf þitt núna, og hann hefur gert það. Nú býr hann í hjarta þínu fyrir Heilagan Anda sinn.
Jesús lofaði þessu: „Ef einhver heyrir raust mína og lýkur upp dyrunum, þá mun ég fara inn til hans.“ Jesús er Guð. Þegar hann gefur loforð, heldur hann það. Ekki treysta á eigin tilfinningar. E.t.v. fannstu ekkert sérstakt, þegar þú baðst bænina. E.t.v. fannstu frið Guðs. Það skiptir ekki máli. Treystu loforði Jesú. Nú ertu þú barn Guðs, nú ert þú kristinn í raun og veru. Nú ert þú endurfæddur inn í fjölskyldu Guðs.
Guðs orð segir: „Öllum þeim sem tóku við honum gaf hann rétt til að verða Guðs börn.“ [Jóh. 1,12]
Nú átt þú eilíft líf.
Jesús segir: „Sá sem trúir, hefur eilíft líf“ [Jóh. 6,47] Þú munt aldrei verða einsamall.
Nú ert þú barn Guðs og meðlimur í fjölskyldu hans, eða limur á líkama hans, Kirkjunni, eins og Biblían orðar það. Þetta á við alla sem trúa á Jesú, óháð litarhætti, bakgrunni eða þekkingu.
Jesús segir: „Ég er með yður alla daga, allt til enda veraldar.“ [Mt.28,20]. Guðlaugur Gunnarsson
|