| Hvað felst í því að vera kristinn? |
|
|
|
|
„Ég ólst upp á trúaðri fjölskyldu. Foreldrar mínir fóru alltaf í kirkju.“ Það er ágætt. en það í sjálfu sér er ekki nóg til að gera þig að kristnum einstaklingi, ekkert frekar enn það að fara í dýragarð geri þig að apa. „Ég trúi á góðverk og það að hjálpa öðrum.“ Þar er rétt hjá þér, en það nægir engan vegin til þess að gera þig að kristnum einstaklingi. Fjöldinn allur sem trúir ekki einu sinni á Guð, geta verið góðir nágrannar sem rétta gjarna hjálparhönd þeim sem þurfa þess með. En það gerir þig ekki að kristnum einstakling. „Ég var skírður, þegar ég var lítill.“ Það gera þúsundir annarra vitnað um, án þess að þeir láti Jesú sig nokkru skipta af þeirri ástæðu. Þú varðveitist ekki sem kristinn einstaklingur þótt þú hafir einhvern tíma verið hluttakandi í trúarathöfn. „Ég trúi á Guð.“ Biblían segir okkur að það geri djöfullinn líka. Hann veit að Guð er til. Kannanir sýna að flestir Íslendingar svara því til að þeir trúi á Guð, en hins vegar vita þeir lítið eða nánast ekkert um það hver Guð er, eða hvernig hann er. Þú getur trúað því að það sé þota sem flýgur yfir Atlantshafið til meginlands Evrópu, en þú kemst ekki eina spönn áleiðis með því einu að trúa því. Viljir þú komast þangað, verður þú að ganga um borð í þotuna og halda af stað. Þótt það sé hárrétt að trúa á Guð, þá er það ekki nóg til að gera þig að kristnum einstaklingi. Hvað er það þá eiginlega að vera kristinn? Nafnið „kristinn“ var notað sem einkenni á fyrstu lærisveinum Jesú. Það þýddi “þeir sem tilheyra Kristi.“ Þess vegna eru „kristnir“ sama og „menn og konur Krists.“ Besta lýsingin á kristnum einstaklingum kemur frá Jesú sjálfum. Hann segir að sá sem vilji fylgja sér þurfi að fæðast að nýju, eða endurfæðast. Við erum öll fædd á venjulegan, náttúrulegan hátt, og erum þannig orðin hluti af stórfjölskyldu mannkynsins. En við þurfum einnig að fæðast inn í fjölskyldu Guðs, ef við ætlum að verða meðlimir hennar. Þetta gerist ekki á náttúrulegan hátt þannig að við fæðumst inn í kristna fjölskyldu, eða að maður gerir góðverk eða er sérlega trúrækinn. Við þurfum að endurfæðast og byrja nýtt líf. Þetta er ekki neitt sem við getum gert sjálf. Þetta er nokkuð sem Guð lofar að hann muni gera fyrir okkur. Guð hefur í kærleika sínum til okkar gert allt sem gera þurfti. Hann sendi Jesú til jarðarinnar og lét hann deyja á krossi fyrir syndir okkar, þannig að við getum fengið fyrirgefningu og orðið börn hans. Nú er leiðin okkur opin. Það er ekki lengur neitt sem lokar henni, og héðan í frá getur hver sem er komið og kynnst Guði, sama hverjir þeir eru eða hvað þeir hafa gert. Guð hefur gert sitt, og nú biður hann okkur um að bregðast við þessu. Viltu verða kristinn einstaklingur og leyfa Jesú Kristi að koma inn í líf þitt? - Vilt þú fá að heyra og vita að hann hefur fyrirgefið þér allar syndir þínar og að þú ert barn Guðs? - Viltu fá að heyra og vita að þú átt eilíft líf af því að Guð lifir í þér, þannig að þegar þú deyrð, færðu að koma til hans í himininn? Þá skaltu ákveða að gefa Jesú Kristi líf þitt. Guðlaugur Gunnarsson |
Aðalvalmynd
Dagskrá
23.05.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma
24.05.2012 16:00 -
18:00
Fundur í Kristniboðsfélagi kvenna
30.05.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma
31.05.2012 20:00 -
22:00
Föndurkvöld
06.06.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma



