| Reis Jesús í alvöru upp frá dauðum? |
|
|
|
|
„Upprisa frá dauðum? Ekki til í dæminu!“ „Ef þú ert á annað borð dauður, þá ertu steindauður. Og þá er ekkert meira!“ Það lék enginn vafi á því, - Jesús var dáinn. Þegar rómverjar tóku einhvern af lífi, voru þeir alltaf vanir að ganga úr skugga um að viðkomandi væri örugglega dauður. Einn af hermönnunum stakk m.a.s. spjóti í hjarta Jesú til þess að vera viss. Það lék enginn vafi á því - Jesús var lagður í gröf. Maður að nafni Jósef frá bænum Arimaþeu fór ásamt vini sínum og saman tóku þeir dáinn líkama Jesú og lögðu í nýja gröf, sem Jósef hafði látið höggva út fyrir sjálfan sig í klettavegginn. Síðan veltu þeir risastórum steini fyrir opið, og það voru settir varðmenn á vakt fyrir utan gröfina. Bæði Gyðingar og Rómverjar vissu að Jesús var dáinn og grafinn. Þeir reiknuðu með að nú væri fyrir fullt og allt búið að ryðja honum úr vegi. Vinir Jesú vissu líka að hann var dáinn. Þeir höfðu horft á hann deyja og séð þegar hann var lagður í gröfina. Konurnar undirbjuggu m.a.s. ilmsmyrsl til þess að fara og smyrja líkama hans með eins og siður var. Og þær fóru til grafarinnar snemma morguns þriðja daginn eftir að hann dó. En þá fengu þeir svakalegt ávall - líkami Jesú var á bak og burt! Lík-klæðin voru þarna ennþá, en gröfin var tóm. Hvað hafði orðið um líkama Jesú? Þetta var mikilvægasta spurningin. Það lék enginn vafi á um að gröfin var tóm. Allir sem höfðu haft eitthvað með þetta að gera vissu hvaða gröf þetta var. Hér gat ekki verið um neinn misskilning að ræða. Höfðu yfirvöld Gyðinga eða Rómverja tekið líkama Jesú? Ef svo hefði verið hefðu þeir komið fram með hann þegar vinir Jesú héldu því fram að hann væri risinn upp frá dauðum og væri aftur lifandi. Höfðu vinir Jesú tekið líkama hans? Hermenn höfðu setið á vakt við gröfina, og lærisveinarnir voru hræddir og í öngum sínum. Það kemur ekki til greina að þeir færu síðar að hætta lífi sínu með því að halda því fram að hann væri upprisinn, ef þeir vissu að það væri lygi, - ef þeir vissu allan tímann hvar líkami Jesú lægi og rotnaði. Ef það voru hvorki óvinir Jesú né vinir hans sem höfðu tekið líkamann, þá er bara ein skýring eftir. Það var Guð sem reisti Jesú upp frá dauðum. Ekkert annað getur skýrt þau mörgu skipti sem Jesús kom fram eftir dauða sinn. Í fjörutíu daga hitti hann vini sína, og venjulega gerðist það í fullri dagsbirtu og á mörgum mismunandi stöðum. Það gat verið inni í herbergi, úti á götu eða niðri við vatnið. Stundum birtist hann einstaklingum, önnur skipti tveim eða þrem, nokkrum sinnum fyrir fjölda fólks, eitt sinn allt að 500 manns í einu. Það er ógjörningur að skýra þessar opinberanir sem ofskynjanir. Hann hitti þá, talaði við þá, og hann borðaði m.a.s. með þeim. Þeir gátu séð hann og snert hann. Hann var enginn draugur. Þetta var sami Jesús og þau höfðu séð deyja á krossinum. Förin eftir þessa hræðilegu aftöku voru enn á höndum hans, fótum og síðu. Hann var eins og áður, en samt öðru vísi. Nú hafði hann upprisulíkama og var ekki lengur bundinn af tíma og rúmi. Það er ekki til nokkur önnur skýring á þeirri miklu breytingu sem varð á lærisveinunum. Þau höfðu verið viti sínu fjær af hræðslu og vissu ekki sitt rjúkandi ráð. Þeim fanst þau vera algjörlega mislukkuð og niðurbrotin, þegar Jesús dó svo skyndilega. En nú voru þau allt í einu full gleði og djörfung. Nú gengu þau út á torgin og boðuðu án ótta að Jesús væri risinn upp frá dauðum, að hann væri lifandi og drottnaði yfir synd og dauða. Það var upprisan sem gerði þau svo örugg um að Jesús var miklu meira enn bara venjulegur maður, - að hann væri Guð. Og þetta var ástæða þess að kristin trú breiddist svo fljótt út og náði svo langt og að milljónir manna tilbiðja Jesú sem Drottin í dag, óháð hvaða bakgrunn þetta fólk hefur, hvert föðurland þess er eða menning. Hann lifir, og þau vita af eigin reynslu að það er satt. Þessi reynsla kristinnar trúar er fyrir alla menn, óháð hverjir eða hvernig þeir eru. Allir geta eignast eilífa lífið sem Jesús einn getur veitt. Einnig þú. Taktu við Jesú sem persónulegum frelsara þínum og leiðtoga lífs þíns. Settu traust þitt á hann. Þá eignast einnig þú þessa reynslu. Guðlaugur Gunnarsson |
Aðalvalmynd
Dagskrá
23.05.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma
24.05.2012 16:00 -
18:00
Fundur í Kristniboðsfélagi kvenna
30.05.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma
31.05.2012 20:00 -
22:00
Föndurkvöld
06.06.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma



