| Af hverju dó Jesús? |
|
|
|
|
Biblían sýnir okkur að, að það sem er að þessum heimi okkar og okkur sjálfum er að við höfum syndgað. Þetta felst fyrst og fremst í því að við setjum okkur sjálf og það sem við viljum framar öllu öðru, framar Guði og náunganum. Það er ekki nóg með að sjálfselska okkar geri öðrum mönnum mein, heldur kemur hún alveg í veg fyrir að við getum haft samband við Guð. Þannig virðist nú sem Guð sé órafjarri okkur og láti sér að engu leyti annt um okkur. Við komumst ekki aftur til Guðs af eigin rammleik. Við erum ekki nógu góð til þess að geta nálgast Guð. Sá eini sem gæti komið sambandi okkar við Guð í lag, varð að vera fullkominn og alveg syndlaus. En fyrst þurfti að fara fram uppgjör vegna synda okkar og afbrota. Við þurftum á einhverjum að halda, sem gæti bjargað okkur, og þess vegna kom Jesús til jarðarinnar. Hann er björgunarmaðurinn sem Guð lofaði að senda okkur. Ef þú dettur út í á og kannt ekki að synda, þá gagnar þér lítið að einhver komi til þess að kenna þér fyrstu sundtökin. Þú þarft á einhverjum að halda sem getur bjargað þér. En hvernig getur Jesús, sem lifði og dó fyrir um 2000 árum síðan, bjargað mér frá syndum mínum í dag? Ímyndum okkur að eðli Guðs líkist mynt með tveim hliðum - önnur hliðin er réttlæti og hin kærleikur. Vegna réttlætis síns verður Guð að fordæma okkur, vegna þess að syndin og ranglætið verða að fá sína hegningu. Okkur myndum ekki þykja mikið til þess dómara koma sem sífellt horfði í gegn um fingur sér við afbrotamenn og léti þá sleppa, án þess að hljóta réttmæta hegningu. En af því Guð er kærleikur, þráir hann að mennirnir snúi aftur til sín. Þetta er nánast eins og þverstæðukenndur vandi sem Guð glímir við. Hann verður að vera réttlátur, og samtímis óskar hann einskis fremur enn að fyrirgefa sekum mönnum afbrot þeirra. Þegar Jesús dó á krossinum, var bæði réttlæti Guðs og kærleika hans fullnægt að fullu. Það varð að refsa fyrir syndina, og þess vegna sendi Guð í kærleika sínum sinn eigin son og lét hann deyja í okkar stað. Hann tók út dauðarefsinguna, sem við áttum skilið. Það var þess vegna, sem Jesús hrópaði á krossinum: „Guð minn, Guð minn, hví hefur þú yfirgefið mig?“ Jesús tók á sig hegninguna fyrir syndir okkar, og þess vegna var hann yfirgefinn af Guði, föður sínum, vegna okkar. Þannig tók hann á sig ábyrgðina fyrir sjálfselsku okkar. Hann svaraði til saka fyrir það sem við höfum gert rangt. Blóði hans var úthellt vegna mín og þín. Pétur var einn af lærisveinum Jesú sem sá hann deyja. Hann skrifaði: „Kristur dó í eitt skipti fyrir öll fyrir syndir, réttlátur fyrir rangláta, til þess að hann gæti leitt yður til Guðs.“ Svo mikið elskaði Guð þig og mig. Það var ekki hægt að bjarga okkur frá sjálfselsku okkar og eigingirni á nokkurn annan hátt. Rétt áður en Jesús gaf upp andann, hrópaði hann: „Það er fullkomnað!“ Þessi orð lýsa engu tapi. Hann sagði ekki: „Skyldi þetta vera nóg?“ Nei, þetta var sigurhróp: „Mér tókst það!“ Hin mikla syndasekt okkar greidd í eitt skipti fyrir öll. Leiðin til baka til Guðs er á ný greiðfær. Við getum fengið fyrirgefningu fyrir allar syndir okkar, og hver sem er getur þegið vináttu Guðs, aðeins ef hann eða hún biður um það. Það að Jesús dó á krossi, er ekki bara atburður í mannkynssögunni. Einnig í dag verðum við mennirnir að taka afstöðu til þessa: Hvaða merkingu hefur dauði Jesú fyrir mig? Guðlaugur Gunnarsson |
Aðalvalmynd
Dagskrá
23.05.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma
24.05.2012 16:00 -
18:00
Fundur í Kristniboðsfélagi kvenna
30.05.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma
31.05.2012 20:00 -
22:00
Föndurkvöld
06.06.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma



