| Var Jesús í raun lifandi persóna í mannkynssögunni? |
|
|
|
|
Sumir spyrja hvort Jesús hafi nokkurn tíma lifað hér á jörð. Var hann ekki bara einhver persóna sem fyrstu kristnu mennirnir fundu upp? Það er mikil og góð ástæða til þess að trúa því að Jesús hafi verið raunveruleg persóna í mannkynssögunni. Hann lifði í raun og veru hér á jörð. Hann fæddist í litlum bæ, sem hét Betlehem í Ísrael á þeim tímum sem landið var hersetið af Rómverjum. Aðeins sú staðreynd að kristin kirkja er til, sýnir okkur að Jesús hefur lifað hér á jörð. Milljónir kristinna manna hafa öld eftir öld allt fram á okkar daga borið þess vitni að þeir þekki Jesú og elski hann og hvernig þeir séu orðnir breyttir menn eftir að Jesús kom inn í líf þeirra. Biblían undirstrikar að Jesús var raunverulegur. Guðspjöllin fjögur, Matteus, Markús, Lúkas og Jóhannes, voru öll skrifuð af mönnum, sem annað hvort þekktu Jesú persónulega, eða höfðu upplýsingar sínar frá mönnum sem höfðu þekkt hann og verið með honum persónulega. Margt af því sem þeir greina frá eru frásagnir fólks sem voru sjónarvottar að því sem þeir lýsa úr lífi Jesú. Veraldlegir sagnaritarar eins og Plinius og Tacitus, sem uppi voru í Rómverska heimsveldinu á fyrstu öld, greina frá kristnum mönnum sem þeir sögðu vera áhangendur einhvers Jesú, sem var tekinn af lífi með krossfestingu undir yfirstjórn skattlandsstjórans Pontíusar Pílatusar, og sem þeir sögðu að hefði risið upp frá dauðum. Pílatus væri mjög áhyggjufullur vegna þessara kristnu manna, sem "báðu til Krists eins og hann væri Guð", og það leiddi til þess að heiðnu hofin stæðu tóm þar sem fleiri og fleiri yrðu kristnir. Gyðinglegi sagnaritarinn Jósefus, sem einnig var uppi á sama tíma, og var langt frá því að vera hlynntur kristindóminum, lýsir í smáatriðum lífi Jesú og kenningu, og hann lítur á frásagnirnar um dauða Jesú og upprisu sem óvéfengjanlegar staðreyndir. Hann talar um Jesú sem klókan mann sem gat framkvæmt furðuleg kraftaverk. Það er enginn vafi á því að Jesús var raunveruleg persóna í mannkynssögunni. En hvernig var hann? Hefurðu kynnt þér það sjálfur? Þú getur lesið um hann í Nýja testamentinu þínu. Þú ættir að kynnast honum persónulega. Hann getur gjörbreytt lífi þínu eins og milljóna annarra manna hér í heimi. Guðlaugur Gunnarsson |
Aðalvalmynd
Dagskrá
23.05.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma
24.05.2012 16:00 -
18:00
Fundur í Kristniboðsfélagi kvenna
30.05.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma
31.05.2012 20:00 -
22:00
Föndurkvöld
06.06.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma



